Hafna Borgarlínu og vilja stöðva þéttingu byggðar í Kópavogi

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Einar Jóhannes Guðnason, oddvita Miðflokksins í Kópavogi í síðdegisútvarpinu, um Borgarlínu, samgöngumál og skipulagsstefnu Kópavogsbæjar. Einar sagði Miðflokkinn vilja endurskoða samgöngusáttmálann, forgangsraða vegaframkvæmdum og stöðva þá þróun sem hann telur hafa leitt til óhóflegrar þéttingar byggðar og versnandi umferðar á höfuðborgarsvæðinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Borgarlína hafi aukið umferðarteppur

Einar sagði að eftir tæplega áratugar vinnu við Borgarlínuverkefnið sæju íbúar fyrst og fremst meiri umferðarteppur og umfangsmiklar skipulagsbreytingar, án þess að samgöngur hefðu batnað. Hann sagði tafir myndast sérstaklega þegar ekið væri úr Kópavogi inn í Reykjavík og taldi lausnina felast í mislægum gatnamótum og öðrum vegaframkvæmdum fremur en þrengingum fyrir einkabílinn. Að hans mati eigi að bæta almenningssamgöngur með aukinni tíðni strætóferða og betra leiðakerfi í stað þess að reyna að þrýsta fólki úr fjölskyldubílnum yfir í borgarlínu.

Aðeins 0,7 bílastæði á hverja íbúð

Í viðtalinu sagði Einar að mikil þétting í Kópavogi væri bein afleiðing skipulags Borgarlínu. Hann nefndi meðal annars uppbyggingu á Kársnesi, í Hamraborg, Fannborg og við Smáralind þar sem skipulag geri sums staðar aðeins ráð fyrir 0,7 bílastæði á hverja íbúð. Hann sagði afleiðingarnar þegar sýnilegar þar sem bílar væru lagðir á gangstéttum og almenningssvæðum vegna skorts á stæðum. Einar gagnrýndi einnig að þjónustu- og verslunarsvæði fengju mjög fá bílastæði miðað við umfang starfseminnar.

Íbúar Hamraborgar hafa verið hundsaðir

Einar sagði íbúa í Hamraborg og Fannborg hafa ítrekað varað við áhrifum framkvæmdanna á umferð, eignaverð og lífsgæði án þess að bæjaryfirvöld hefðu hlustað. Hann sagði samráðsfundi hafa verið kynningar fremur en raunverulegt samráð við íbúa. Miðflokkurinn vilji að Kópavogur þróist áfram sem fjölskylduvænt sveitarfélag með hóflegri þéttingu, grænum svæðum og nægum bílastæðum en ekki sem „Borgarlínubæ“ þar sem skipulagið miðist fyrst og fremst við almenningssamgöngur.

Gagnrýnir lóðastefnu bæjarins

Hann gagnrýndi einnig að Kópavogsbær seldi lóðir hæstbjóðendum og notaði tekjur af lóðasölu til að bæta rekstrarniðurstöðu bæjarins. Hann sagði Miðflokkinn vilja lækka lóðagjöld og afnema vaxtarmörk á höfuðborgarsvæðinu til að auðvelda húsnæðisuppbyggingu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila