Hafnar hugmyndum um sölu Landsbankans til að fjármagna Borgarlínu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu á Útvarpi sögu og spurði hana um þær hugmyndir sem fram hefðu komið um að selja Landsbankann og fjármagna Borgarlínu á Höfuðborgarsvæðinu. Kristrún sagði bankann vera eign allra landsmanna og gagnrýndi hugmynd Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, um að ráðstafa andvirði hans til framkvæmda sem nýttust fyrst og fremst höfuðborgarbúum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Landsbankinn er eign allra landsmanna

Arnþrúður spurði Kristrúnu um hugmynd bæjarstjóra Kópavogs um að selja Landsbankann og nota söluandvirðið til að fjármagna Borgarlínu.

Kristrún gagnrýndi hugmyndina harðlega og sagði óeðlilegt að selja ríkiseign sem tilheyrði allri þjóðinni til að standa undir framkvæmdum á einu landsvæði.

Hún benti jafnframt á að Landsbankinn greiddi ríkissjóði tugi milljarða króna í arð á ári. Við sölu bankans myndi ríkið því missa þær reglulegu tekjur og ekki væri hægt að horfa eingöngu til söluandvirðisins.

Kristrún sagði einnig hugmyndina fela í sér vantraust á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þegar hefði verið samið um fjármögnun samgönguframkvæmda og Ásdís sjálf verið meðal þeirra sem undirrituðu samkomulagið.

Engin áform um að selja bankann á næstunni

Kristrún sagði ekkert liggja á að selja Landsbankann og að fyrst þyrfti að ákveða hvaða hlutverki bankinn ætti að gegna til framtíðar.

Hún kvaðst almennt ekki þeirrar skoðunar að ríkið ætti að halda eignarhlutum í fyrirtækjum án sérstakrar ástæðu. Sala ríkiseigna ætti hins vegar að byggjast á því hvort starfsemin ætti heima hjá ríkinu en ekki á tímabundinni þörf fyrir fjármagn.

Kristrún gagnrýndi að eignasala hefði áður verið notuð til að fjármagna útgjöld ríkis og sveitarfélaga. Eign væri aðeins hægt að selja einu sinni en rekstrarkostnaður félli til ár eftir ár og þyrfti að fjármagna með varanlegum tekjum eða lægri útgjöldum.

Arnþrúður rifjaði í þessu sambandi upp fyrri áform um að nýta söluandvirði Landssímanns til að fjármagna nýtt sjúkrahús og Sundabraut. Það hefði verið á árinu 2004.

Hugmyndir um samfélagsbanka til skoðunar

Arnþrúður vakti einnig máls á hugmyndum um að breyta hlutverki Landsbankans og gera hann að samfélagsbanka sem gæti betur mætt þörfum almennings.

Kristrún sagði slíkar hugmyndir áður hafa komið til umræðu en engin sérstök vinna væri nú í gangi við að breyta Landsbankanum í samfélagsbanka.

Hins vegar hefði Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra komið á fót vinnuhópi sem skoðaði mismunandi útfærslur húsnæðislánakerfa.

Þar væru meðal annars til skoðunar fyrirkomulag húsnæðislána í Danmörku og starfsemi fjármálastofnana sem þjónuðu almennum neytendum.

Kristrún sagði rétt að bíða niðurstöðu þeirrar vinnu áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar um framtíðarfyrirkomulag húsnæðislána.

Einskiptis eignasala leysir ekki fjármögnunarvanda

Kristrún sagði grundvallarmun vera á því að selja eign vegna þess að ríkið ætti ekki að standa í viðkomandi rekstri og því að selja eign til að greiða fyrir tiltekna framkvæmd eða standa undir rekstrarútgjöldum.

Hún gagnrýndi sérstaklega þá aðferð að ráðstafa söluandvirði ríkiseigna til verkefna án þess að tryggja varanlega fjármögnun þeirra.

Að hennar sögn þyrfti að standa undir árlegum útgjöldum með reglulegum tekjum eða samsvarandi sparnaði. Sala Landsbankans til að fjármagna Borgarlínu væri því hvorki skynsamleg ráðstöfun á þessum tímapunkti né lausn á fjármögnun samgöngumála höfuðborgarsvæðisins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila