
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sverri Pál Einarsson, formann Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, í síðdegisútvarpinu um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á fullveldi landsins. Sverrir hafnaði því að aðild fæli í sér fullveldisframsal og sagði að Ísland nýtti þegar fullveldi sitt með því að gera alþjóðasamninga og taka á sig skuldbindingar. Hann sagði þó að breyta þyrfti stjórnarskránni ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Segir fullveldið nýtt í alþjóðasamstarfi
Aðspurður um hvort ESB-aðild myndi skerða fullveldi Íslands segir Sverrir að ríki nýti fullveldi sitt með því að ákveða sjálf að ganga til alþjóðlegra samninga. Hann nefnir þar meðal annars NATO, EES-samninginn og aðra alþjóðlega samninga og segir að sama sjónarmið myndi gilda um aðild að Evrópusambandinu.
Þegar Pétur benti á að breyta þyrfti stjórnarskránni tók Sverrir undir það. Hann segir að bæta þyrfti við heimild til að framselja afmarkað ríkisvald til yfirþjóðlegra stofnana, líkt og víða sé að finna í stjórnarskrám annarra Evrópuríkja. Að hans mati breytir það þó ekki þeirri staðreynd að Ísland taki sjálft ákvörðunina og fari áfram með fullveldi sitt.
Vill fá Ísland að ákvörðunaborðinu
Þá benti Pétur á að Evrópuréttur gangi framar landsrétti á ákveðnum sviðum. Sverrir svarar því til að Ísland innleiði nú þegar stóran hluta EES-reglna án þess að taka þátt í endanlegri ákvörðunartöku. Hann telur því lýðræðislega betra að Ísland eigi fulltrúa við borðið þegar reglurnar eru mótaðar.
Aðspurður um takmarkað vægi Íslands innan Evrópusambandsins segir Sverrir að áhrif ríkja ráðist ekki aðeins af fjölda fulltrúa heldur einnig af virkri þátttöku í starfi stofnana sambandsins. Hann telur því að aðild myndi styrkja möguleika Íslands til að gæta eigin hagsmuna fremur en að fela í sér fullveldisframsal.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
