Háir vextir og dýrar lóðir rót húsnæðisvandans í Reykjavík

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar Borgar og Baldur Borgþórsson, sem skipar 2.sæti lista Okkar Borgar í síðdegisútvarpinu í dag, um húsnæðismál, þéttingu byggðar, lóðaverð og stöðu leigumarkaðarins. Þeir sögðu húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar og hátt vaxtastig á Íslandi hafa gert almenningi sífellt erfiðara fyrir að eignast eigið húsnæði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fólk vill eignast húsnæði en ekki leigja

Baldur sagði meginþorra fólks vilja eignast eigið húsnæði fremur en að vera á leigumarkaði til lengri tíma. Hann vísaði til samtala sem hann hefði átt við íbúa í leiguhúsnæði Bjargs íbúðafélags, þar sem nær allir hefðu sagst vilja kaupa íbúðir sínar ef þeir hefðu raunhæfan möguleika á því. Hann sagði núverandi stefnu stjórnvalda og sveitarfélaga leggja ofuráherslu á uppbyggingu leiguhúsnæðis í stað þess að skapa aðstæður þar sem almenningur gæti byggt upp eigið húsnæði og eignamyndun.

Sigfús sagði Okkar Borg vera flokk sem stæði með séreignarstefnunni og teldi mikilvægt að fólk hefði raunhæfan möguleika á að eignast húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Háir vextir meginorsök vandans

Í viðtalinu lagði Baldur mikla áherslu á að vextir væru stærsti einstaki þátturinn í húsnæðisvandanum. Hann tók dæmi af stúdíóíbúð sem kostaði 50 milljónir króna þar sem kaupandi legði fram 10 milljónir í útborgun og tæki 40 milljóna króna lán hjá Landsbankanum. Samkvæmt Baldri væri mánaðarleg greiðslubyrði slíks láns um 333.000 krónur á Íslandi á meðan sambærilegt lán í Svíþjóð bæri um 69.000 króna greiðslubyrði.

Hann sagði muninn sýna hvernig íslenska fjármálakerfið, bankarnir, Seðlabanki Íslands og aðrar fjármálastofnanir ynnu gegn heimilunum. Að hans mati væru verðbólga og vaxtastefna orðnar viðvarandi byrði á almenningi á meðan fjármálakerfið hagnaðist á ástandinu.

Þéttingarstefna hækkar húsnæðisverð

Sigfús og Baldur gagnrýndu einnig þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar og sögðu hana hafa stuðlað að hærra húsnæðisverði. Þeir töldu borgina markvisst reyna að byggja smærri og þéttari íbúðir með færri bílastæðum í stað þess að skipuleggja hefðbundin fjölskylduhverfi.

Þeir nefndu sérstaklega Keldnaland og önnur ný þróunarsvæði þar sem gert væri ráð fyrir mikilli þéttingu byggðar og sameiginlegum bílastæðahúsum. Baldur sagði slíkar hugmyndir ekki byggðar á hagkvæmni heldur hugmyndafræði gegn einkabílnum.

Gagnrýna lóðasölu sveitarfélaga

Sigfús sagði sveitarfélög hafa breytt lóðum í mikilvæga tekjulind með því að selja þær á háu verði. Hann sagði það hafa ýtt undir hækkun húsnæðisverðs og gert ungu fólki erfiðara fyrir að kaupa sér húsnæði. Hann nefndi dæmi um lóðir undir einbýlishús í Hafnarfirði sem gætu kostað um 20 milljónir króna og sagði slíkt sýna hvernig sveitarfélög hefðu farið að treysta á lóðasölu til að fjármagna rekstur sinn.

Þeir sögðu Okkar Borg vilja lækka kostnað við lóðir og hætta að líta á þær sem tekjuöflun fyrir sveitarfélagið. Að þeirra mati væri nauðsynlegt að breyta bæði skipulagsstefnu og fjármálakerfi til að gera almenningi aftur kleift að eignast eigið húsnæði.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila