
Félagið Æruvernd stendur fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19. apríl kl. 14 undir yfirskriftinni „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla“.
Á málþinginu verður fjallað um persónu- og æruvernd og mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar í slíkum málum. Sérstök umfjöllun verður um rannsókn máls séra Friðriks Friðrikssonar og viðbrögð við niðurtöku styttna og minnismerkja tengdum honum.
Leita svara í máli séra Friðriks
Æruvernd kynnir vinnu sína við að upplýsa málið og viðleitni til að eiga samtal við þá sem komu að því. Markmiðið er að varpa ljósi á atvik og stuðla að frekari skýringu málsins.
Aðilum sem tengjast málinu hefur verið boðið að taka þátt í pallborði, þar á meðal sr. Bjarna Karlssyni og Sigríði Júlíusdóttur. Þá er einnig stefnt að þátttöku annarra sem hafa tjáð sig opinberlega um málið.
Fjölbreyttur hópur ræðumanna
Meðal ræðumanna eru Björn Jón Bragason kennari og lögfræðingur, Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari og Valgerður Snæland Jónsdóttir ráðgjafi. Einnig taka til máls félagsmenn úr KFUM og K, Val og Fóstbræðrum.
Afstaða til niðurtöku styttu séra Friðriks til umræðu
Stjórnmálasamtökum sem bjóða fram í Reykjavík hefur verið boðið að gera grein fyrir afstöðu sinni til niðurtöku styttu af séra Friðriki við Lækjargötu og meðferðar hennar í kjölfarið.
