
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embættinu mánudaginn 20. apríl. Halla Bergþóra hefur gegnt starfi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2020, sem er stærsta lögregluembætti landsins. Hún er 56 ára og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995.
Áratuga reynsla af lögreglustörfum
Í tilkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu segir að Halla Bergþóra hafi 19 ára reynslu af stjórnun lögregluembætta. Síðustu 17 ár hefur hún verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, þar á meðal hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hún starfaði einnig sem sýslumaður á Akranesi á árunum 2009 til 2014.
Leiddi umfangsmikil verkefni
Þá segir í tilkynningunni að í störfum sínum hafi Halla Bergþóra stýrt stórum hópum starfsfólks og leitt umfangsmikil verkefni innan lögreglunnar. Hún var formaður lögreglustjórafélagsins þegar ný skipan lögregluembætta var innleidd og kom að mótun þeirra í samstarfi við ráðuneytið.
Fjórir sóttu um embættið
Embætti ríkislögreglustjóra var auglýst laust til umsóknar 3. desember og bárust fjórar umsóknir.
