
Það er engin þörf á því að Ísland gangi í Evrópusambandið enda hefur Íslandi hingað til vegnað vel án þess að vera þar og þannig mun það vera áfram. Þetta segir Halla Hrund Logadóttir frambjóðandi Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi og orkumálastjóri í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur í Síðdegisútvarpinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Innganga í ESB takmarkar fullveldi Íslands
Halla Hrund bendir á að Ísland hafi einnig náð góðum árangri í alþjóðlegum samskiptum án þess að ganga í Evrópusambandið og því væri óþarfi að sækjast eftir inngöngu. Hún benti á að landið njóti sérstöðu í auðlindamálum og matvælaframleiðslu sem þurfi að vernda. Halla varaði einnig við því að tengsl við Evrópusambandið myndu skerða sjálfstæði landsins í stjórnun auðlinda og að innganga myndi leiða til takmarkana á fullveldi Íslands.
Sjálfstæði Íslands nauðsynlegt vegna sérstöðu auðlinda landsins
Hún bendir á að með því að halda sjálfstæði okkar frá Evrópusambandinu geti Ísland nýtt auðlindir sínar til að skapa blómlegt samfélag með fjölbreyttum tækifærum um allt land. Halla Hrund leggur mikla áherslu á það að byggðaþróun um landið sé styrkt og tækifæri séu til staðar fyrir komandi kynslóðir í gegnum eflingu innviða, samgangna og landbúnaðar.
Landbúnaður og sjávarútvegur eru hornsteinn íslenskrar efnahagsstefnu
Halla Hrund undirstrikaði að Framsóknarflokkurinn hafi ávallt staðið vörð um sjálfstæði Íslands og íslenska hagsmuna og telur hún að flokknum beri að halda áfram að verja þessa stefnu. Hún sagðist vera þeirrar skoðunar að með inngöngu í Evrópusambandið myndi Ísland missa stjórn á mikilvægum málaflokkum eins og landbúnaði og sjávarútvegi, sem eru hornsteinar í íslenskri efnahagsstefnu.
Ísland á að styrkja sjálfbæra efnahagslega uppbyggingu
Í ljósi þessara sjónarmiða telur Halla Hrund að Ísland eigi að halda áfram að þróa sínar auðlindir og styrkja sjálfbæra efnahagslega uppbyggingu án inngöngu í Evrópusambandið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
