
Halla Hrund Logadóttir oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi og orkumálastjóri hefur lýst áhyggjum af því að of hröð uppbygging á Vindmyllum á Íslandi geti haft neikvæð áhrif á orkuverð og geti hækkað raforkuverð til almennings, sér í lagi vegna tengsla við erlenda fjárfesta. Þetta kom fram í máli Höllu í Síðdegisútvarpinu í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur.
Halla lagði áherslu á að þó vindorka frá Vindmyllum sé mikilvægur þáttur í orkuframleiðslu framtíðarinnar, þurfi að fara varlega í uppbyggingu vindorkuvera til að tryggja að áhrif á íslenskt samfélag séu jákvæð og sjálfbær.
Varar við að áhrif erlendra fjárfesta á orkumarkaðinn verði ekki of milil og arður fari úr landi
Halla benti á að mörg fyrirhuguð Vindmylluverkefni á Íslandi væru á vegum erlendra fyrirtækja, sem gæti haft veruleg áhrif á hvernig arður af verkefnunum rennur til samfélagsins. Hún varaði við því að skortur á skýrum leikreglum varðandi eignarhald og nýtingu auðlinda gæti leitt til þess að tekjur af orkuvinnslu færu úr landi og að áhrif erlendra fjárfesta á orkumarkaðinn yrðu meiri en æskilegt er.
Orka frá vindmyllum fer á uppboðsmarkað Landsnets og hækkar raforkuverð
Hún fjallaði einnig um möguleikann á að vindorka gæti aukið kostnað almennings í formi hærra orkuverðs. Aðspurð sagði Halla að innleiðing vindorkuverkefna án skýrra reglna gæti leitt til þess að erlendir aðilar myndu ráða verðlagningu á orku, sem gæti haft áhrif á orkuverð til íslenskra heimila og fyrirtækja. Meðal annars vegna þess vegna uppboðsmarkaðar Landsnets og að erlendir aðilar ráði markaðsverðinu með kaupum á orku á þeim markaði. Hún ítrekaði mikilvægi þess að stjórnvöld setji inn varnir og tryggingar til að koma í veg fyrir slíka þróun og tryggja stöðugt orkuverð fyrir almenning.
Verður að tryggja að arðurinn renni til samfélagsins og orkuverð verði ekki fyrir áhrifum erlendis frá
Að mati Höllu er lykilatriði að uppbygging vindorkuvera fari fram í skrefum og á afmörkuðum svæðum, þar sem bæði samfélagsleg áhrif, eignarhald og umhverfisáhrif séu tekin með í reikninginn. Hún telur að ef rétt sé staðið að málum geti vindorka frá Vindmyllum orðið mikilvæg viðbót í orkuframleiðslu landsins, en að það verði að tryggja að arðurinn renni til samfélagsins og að orkuverð til almennings verði ekki fyrir áhrifum af erlendum markaðsáhrifum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
