Handteknir eftir að hafa reynt að hlaupa frá lögreglu

Í gær  var tilkynnt um menn sem væru vopnaðir hnífum utan við skemmtistað í miðbænum. Lögregla brást strax við og sendi fjölmennt lið á vettvang en mennirnir voru farnir þegar lögregla kom á staðinn.

Stuttu síðar barst tilkynning um mann sem haldið væri fyrir utan annan skemmtistað. Lögregla taldi í fyrstu að málin tengdust og var lögregla sem var við leit vegna fyrra málsins fljót á vettvang. Þar náði hún fjórum mönnum sem af óljósum ástæðum reyndu að hlaupa undan lögreglu og losa sig á hlaupunum við áberandi klæðnað sem þeir voru í.

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið eða hvort það tengdist fyrra málinu og segir lögregla málið vera á frumstigi rannsóknar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila