Haustspá Guðrúnar: Fall ríkisstjórnarinnar, endalok ESB og miklar breytingar í stjórnmálum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, miðil og heilara, í síðdegisútvarpinu í gær, um haustið og veturinn fram undan. Guðrún spáir meðal annars falli ríkisstjórnarinnar, miklum mótmælum, breytingum á forystu stjórnmálaflokka, endalokum Evrópusambandsins í núverandi mynd og samkomulagi sem leiði til loka stríðsins í Úkraínu. Hún sér einnig fyrir sér verkföll og óróa á vinnumarkaði og telur að stórar breytingar verði í Bandaríkjunum á næstu árum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skjal sýni að ESB-umsóknin sé ógild

Guðrún telur að reynt verði að halda Evrópumálinu lifandi þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Hún spáir því að reynt verði að færa Ísland nær Evrópusambandinu eftir öðrum leiðum en að síðar komi fram skjal sem sýni að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé ógild.

Hún nefndi Sigmund Davíð Gunnlaugsson í því sambandi og taldi hann eiga eftir að grafa málið upp. Forseti Íslands gæti einnig komið að því með einhverjum hætti.

Arnþrúður rifjaði upp að Ursula von der Leyen, hefði áður lýst umsókn Íslands enn gilda. Guðrún hélt hins vegar fast við að annað ætti eftir að koma í ljós og sagðist vera um 95% viss um það.

ESB lognist út af og evran hverfi

Guðrún heldur jafnframt fast við fyrri spá sína um að Evrópusambandið í núverandi mynd lognist út af innan 3ja ára.

Hún sér stjórnmálabreytingar í Þýskalandi og Frakklandi og nefndi einnig Portúgal og ríki Austur-Evrópu. Að hennar mati mun nýtt samstarfsform taka við af núverandi Evrópusambandi þar sem ríkin fá aftur meira sjálfstæði.

Hún spáir því jafnframt að evran hverfi og einstök ríki taki í auknum mæli upp eigin gjaldmiðla.

Schengen og innflytjendamál taki einnig breytingum. Ríkin muni sjálf taka fastar á landamærum sínum, skipulagðri glæpastarfsemi og straumi fólks milli landa.

Ríkisstjórnin fari og mótmæli blossi upp

Stærsta innlenda spáin snýr að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Guðrún sér mikinn þingvetur fram undan með málþófi, þrefi og töfum. Hún telur ríkisstjórnina eiga erfitt með að koma málum sínum í gegnum Alþingi og spáir því að Bókun 35 fái ekki nægan stuðning.

Hún hafði áður séð Ingu Sæland fyrir sér slíta ríkisstjórnarsamstarfinu en hallast nú frekar að því að Kristrún Frostadóttir verði sú sem taki ákvörðunina.

Guðrún sagði hitna mikið í kolunum og taldi mögulegt að ríkisstjórnarsamstarfið slitnaði fyrir jól. Hún fékk jafnframt töluna 9 og telur breytinguna að minnsta kosti verða innan 9 mánaða eða 9 vikna.

Hún sér einnig fyrir sér mikil mótmæli og líkti þeim við búsáhaldabyltinguna. Reiðin í samfélaginu væri orðin það mikil að hún ætti eftir að brjótast út með sýnilegum hætti.

Nýir formenn og uppstokkun flokkanna

Miklar breytingar verða einnig innan stjórnmálaflokkanna samkvæmt spánni.

Guðrún telur Ingu Sæland fá mótframboð og að nýr formaður taki við Flokki fólksins. Hún tók þó fram að Inga gæti breytt stöðunni með ákveðnari afstöðu, meðal annars með því að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu.

Í Samfylkingunni sér Guðrún fyrir sér dökkhærða konu tengda Norðurlandi taka við formennskunni af Kristrúnu Frostadóttur. Konan sé innan flokksins en sitji ekki á Alþingi.

Hjá Miðflokknum sér hún Nönnu Gunnlaugsdóttur, systur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fara meira í forystu en Sigmund Davíð standa þar að baki.

Guðrún sér Lilju Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins, koma inn fyrir Framsókn í næstu ríkisstjórn. Hún spáir hins vegar miklu fylgistapi Viðreisnar og sagði á einum stað í þættinum að flokkurinn gæti jafnvel dottið út.

Miðflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn myndi næstu stjórn

Guðrún sér Miðflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn mynda næstu ríkisstjórn.

Hún taldi mögulegt að fyrst yrði sett saman stjórn þegar núverandi ríkisstjórn færi frá og kosningar síðan undirbúnar í framhaldinu.

Þetta tengdi hún þeirri miklu uppstokkun sem hún sér fyrir sér bæði innan ríkisstjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar.

Trump og Pútín nái samkomulagi

Í alþjóðamálum spáir Guðrún því að Donald Trump eigi eftir að ná samkomulagi við Vladimir Pútín sem verði lykillinn að því að stöðva stríðið í Úkraínu.

Arnþrúður benti á að Rússland væri árásaraðilinn og spurði hvernig hægt væri að stöðva árásirnar. Guðrún taldi Pútín eiga eftir að finna fyrir þrýstingi innan Rússlands og að samkomulag yrði að lokum niðurstaðan.

Hún sér jafnframt fyrir sér að hluti þeirra landsvæða sem deilt er um, meðal annars í austurhluta Úkraínu, fari undir Rússland.

Enduruppbygging Úkraínu verði síðan langt verkefni. Guðrún fékk töluna 15 og túlkaði hana þannig að um 15 ár gæti tekið að byggja landið upp aftur.

Verkföll og erfiður vetur á vinnumarkaði

Guðrún spáir einnig óróa á vinnumarkaði.

Hún telur verkfall flugvirkja verða að veruleika og sér möguleika á að erlendir flugvirkjar verði fengnir til landsins svo starfsemi Icelandair stöðvist ekki.

Hún sér einnig fyrir sér aukið atvinnuleysi og áframhaldandi átök um vexti, verðbólgu og kjarasamninga. Sólveig Anna Jónsdóttir og verkalýðsforinginn á Akranesi verði meðal þeirra sem gefi lítið eftir.

Guðrún heldur jafnframt fast við fyrri spá sína um að seðlabankastjóri fari frá.

Trump merji meirihlutann – Mamdani komi síðar sterkt inn

Guðrún telur Donald Trump rétt merja það að halda meirihluta repúblikana í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. Hún sér hann koma með útspil sem dugi til þess en telur niðurstöðuna verða mjög tæpa.

Óvæntari spá hennar snýr að Zohran Mamdani borgarstjóra New York.

Guðrún sagði hann hafa birst sér í hugleiðslu og sér möguleika á að hann bjóði sig síðar fram til forseta Bandaríkjanna og geti jafnvel orðið næsti forseti landsins.

Guðrún tók sjálf fram í lok þáttarins að miðlar hefðu ekki alltaf rétt fyrir sér og að gott væri ef helmingur spánna rættist. Arnþrúður sagði þáttinn jafnframt vera leik með það sem Guðrún skynjaði og sæi fyrir sér með sínum aðferðum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila