
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, miðil og heilara, í síðdegisútvarpinu í dag, um þingveturinn sem nú er að hefjast og framtíð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Guðrún spáir miklu málþófi og töfum á Alþingi, að ríkisstjórnin nái litlu fram og fari að lokum frá. Hún sér jafnframt fyrir sér fjölmenn mótmæli sem minni á búsáhaldabyltinguna á sínum tíma og telur að Kristrún verði sjálf sú sem að lokum slíti ríkisstjórnarsamstarfinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Málþóf og tafir setji þingið í uppnám
Guðrún sagði fjárlögin og skattahækkanir verða meðal stærstu átakamála þingsins í vetur. Hún sér fyrir sér mikið málþóf og erfitt verði fyrir stjórnarflokkana að koma málum sínum í gegnum Alþingi.
Stjórnarandstaðan muni þrýsta fast á ríkisstjórnina og Guðrún taldi að hver höndin yrði upp á móti annarri. Hún sagði stjórnarflokkana ekki hafa staðið undir þeim væntingum sem kjósendur hefðu gert til þeirra og nefndi Ingu Sæland sérstaklega sem þá sem hefði helst reynt að standa við kosningaloforð sín.
Bókun 35 nái ekki í gegn
Arnþrúður spurði sérstaklega um Bókun 35 og hvort meirihluti væri fyrir henni á Alþingi. Guðrún fékk nei þegar hún skoðaði málið og taldi ekki alla þingmenn stjórnarmeirihlutans styðja bókunina. Mjótt gæti þó orðið á munum.
Hún sér fyrir sér að þingveturinn einkennist almennt af þrefi, málþófi og töfum og það grafi smám saman undan ríkisstjórnarsamstarfinu.
Kristrún slíti ríkisstjórninni
Guðrún hafði áður talið að Inga Sæland yrði sú sem sliti ríkisstjórnarsamstarfinu en sagðist nú hallast meira að því að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra yrði sú sem tæki það skref.
Ástæðuna tengdi hún meðal annars við mótmæli og vaxandi óánægju í samfélaginu.
Arnþrúður spurði hvort breytingarnar gætu orðið strax fyrir áramót. Guðrún sagði hitna ansi mikið í kolunum og að ríkisstjórnarsamstarfið gæti slitnað fyrir jól. Hún fékk þó einnig töluna 9 og taldi öruggt að breytingin yrði innan 9 mánaða, það gæti líka táknað 9 vikur.
Mótmæli eins og í búsáhaldabyltingunni
Guðrún sagði Kristrúnu innst inni heilsteypta en taldi hana eiga eftir að finna til samviskubits gagnvart þjóðinni þegar mótmælin hæfust.
Arnþrúður spurði þá beint hvort Guðrún sæi mótmæli framundan.
Guðrún sagðist sjá mótmæli á borð við þau sem urðu í búsáhaldabyltingunni og tengdi þau þeirri miklu reiði sem hún telur vera í samfélaginu. Hún hvatti fólk þó um leið til að festast ekki í reiðinni heldur halda í kærleikann.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
