
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Pál Halldór Halldórsson rallýökumann og jeppaáhugamann í síðdegisútvarpinu í dag, um framtíð íslenskrar jeppamenningar. Páll segir þróun bílaframleiðslu, hertar mengunarkröfur og óvissu um regluverk valda því að sífellt erfiðara verði að nálgast jeppa sem henti íslenskum aðstæðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Færri jeppar í boði
Páll sagði hefðbundna jeppa nánast vera að hverfa úr framleiðslu. Í stað þeirra kæmu sífellt fleiri jepplingar sem hentuðu vel á malbiki en væru ekki hannaðir fyrir hálendisakstur eða krefjandi aðstæður. Hann nefndi að björgunarsveitir hefðu í auknum mæli þurft að kaupa bíla á borð við Toyota Hilux og Land Cruiser og láta breyta þeim. Slíkar breytingar gætu kostað tugi milljóna króna og væru því langt frá því að vera á færi venjulegra fjölskyldna.
Mengunarkröfur breyta markaðnum
Páll sagði evrópskar mengunarkröfur hafa haft mikil áhrif á þróun bílaframleiðslu. Bílaframleiðendur hefðu lagt áherslu á minni vélar og nýja tækni til að uppfylla sífellt strangari losunarkröfur en afleiðingin væri að færri öflugir jeppar kæmu á markað.
Hann benti jafnframt á að jeppar sem framleiddir væru fyrir Asíumarkað stæðust oft ekki evrópskar kröfur og því væri ekki unnt að flytja þá hingað til lands.
Rafvæðingin vekur spurningar
Í þættinum var rætt um hvort rafbílar gætu tekið við hlutverki hefðbundinna jeppa. Páll sagði þróunin vekja margar spurningar, meðal annars um hvernig rafknúin ökutæki myndu reynast í vatnsföllum, snjó og annarri erfiðri hálendisfærð eins og er algeng hér á Íslandi.
Hann nefndi jafnframt að íslensk þróunarverkefni væru í gangi við hönnun nýrra jeppa en sagði framtíð íslenskrar jeppamenningar engu að síður ráðast af því hvort áfram yrði svigrúm til að þróa og breyta ökutækjum fyrir íslenskar aðstæður eða hvort bílaeigendur yrðu bundnir af Evrópureglum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
