
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Kára Stefánsson, lækni og fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, í þættinum Skipulagsmálunum um stöðu heilbrigðiskerfisins. Kári sagði nýja Landspítalann þegar orðinn of lítinn áður en hann er fullbyggður og telur stærri vanda kerfisins ekki aðeins snúast um fjárveitingar heldur einnig skipulag, hvata og hugarfar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Nýi spítalinn þegar orðinn of lítill
Kári sagði þröngt um nýja Landspítalann við Hringbraut. Helsti kostur staðsetningarinnar væri að hægt yrði að nýta gamla spítalann samhliða þeim nýja en lítið svigrúm væri til frekari stækkunar.
Hann telur því að þegar næst þurfi að byggja upp stóran spítala verði það annars staðar og að aðalspítali landsins muni á endanum færast frá Hringbraut. Nýi spítalinn væri jafnframt þegar orðinn of lítill þótt framkvæmdum við hann sé ekki lokið.
Kerfið dreifir starfskröftum lækna
Kári gagnrýndi hvernig læknum er umbunað fyrir vinnu sína og sagði kerfið hafa skapað hvata til að starfa á mörgum stöðum, til dæmis bæði á Landspítalanum og á stofum úti í bæ.
Hann telur þessa þróun hafa afvegaleitt læknastéttina að hluta. Íslenskir læknar séu mjög vel menntaðir en samfélagið nýti starfskraft þeirra ekki nægilega vel.
Sérstaklega vanti faglegt aðhald þegar læknar starfa einir á stofum utan sjúkrahúsa.
Allt að 4 ára bið eftir geðlækni
Kári nefndi geðheilbrigðisþjónustuna sem dæmi um vandann. Kunningi hans hafði dvalið á geðdeild í nokkra daga án þess að hitta lækni fyrr en við útskrift.
Bið eftir geðlækni gæti jafnframt orðið 1–4 ár. Kári telur stjórnvöld þurfa að hafa meiri áhrif á hvernig starfskraftur geðlækna er nýttur, sérstaklega þar sem stærstur hluti þjónustunnar er fjármagnaður af hinu opinbera.
Aukið fjármagn geti leyst ýmis vandamál en ekki þann stærsta. Þar þurfi einnig breytingar á skipulagi, hvötum og hugarfari innan heilbrigðisþjónustunnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
