
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar Alþingis, í síðdegisútvarpinu um kostnað ríkisins vegna hælisleitenda og annarra erlendra ríkisborgara sem fá greiðslur úr opinberum kerfum. Sigurjón sagði kostnaðinn dreifast á marga fjárlagaliði og hafði ekki heildartöluna við höndina. Hann ætlar að beita sér fyrir því að fá fram skýrari tölur um fjölda þeirra sem fá greiðslur og heildarkostnað ríkisins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Kostnaðurinn dreifist á marga liði
Arnþrúður spurði hversu mikið hælisleitendur og aðrir sem eru á framfæri ríkisins kosti skattgreiðendur.
Sigurjón sagði kostnaðinn falinn í mörgum liðum fjárlaganna og hafði ekki eina heildartölu tiltæka. Hann sagði hins vegar hafa hægt verulega á straumi hælisleitenda og stjórnvöld væru að ná betur utan um málaflokkinn. Flokkur fólksins hefði þrýst á um frekari aðgerðir og Sigurjón sagðist ætla að beita sér fyrir því á næstu vikum að fá tölurnar betur upp á borðið.
Getur ekki staðfest heildarkostnað
Arnþrúður lagði áherslu á að almenningur vildi fá skýr svör um hversu margir væru á framfæri ríkisins, hvaða greiðslur þeir fengju og hver heildarupphæðin væri. Hún nefndi að í umræðunni hefðu heyrst tölur um heildarkostnaðurinn gæti numið um 100 milljörðum króna á ári en Sigurjón gat ekki staðfest þá tölu.
Hann vísaði til þess að Inga Sæland hefði fyrir nokkrum árum lagt fram fyrirspurn um kostnaðinn þegar straumur hælisleitenda var meiri. Ef hann myndi rétt hefði talan þá verið um 20 milljarðar króna. Sigurjón sagði nú þurfa að vinna málið upp á nýtt og ná betri heildarmynd.
Atvinnuleysisbætur greiddar úr landi
Sigurjón nefndi atvinnuleysisbætur sem einn þeirra þátta sem þyrfti að skoða.
Hann sagði slíkar bætur að stórum hluta greiddar úr landi til erlendra ríkisborgara og taldi þar mögulegt að ná betur utan um útgjöldin. Tilraun hefði verið gerð á síðasta þingi til að stytta bótatímann en fallið hefði verið frá því vegna andstöðu verkalýðshreyfingarinnar.
Heilbrigðisþjónusta bætist við heildarkostnaðinn
Arnþrúður spurði einnig um falinn kostnað t,d vegna heilbrigðisþjónustu við útlendinga og hvort hægt væri að fá þann lið sérstaklega sundurliðaðan.
Sigurjón sagði það verða tekið fyrir þegar ráðherrar kæmu fyrir fjárlaganefnd á næstu vikum. Þá gætu nefndarmenn óskað eftir minnisblöðum og nánari upplýsingum um einstaka kostnaðarliði. Hann sagði kostnaðinn nú vera inni í ýmsum þáttum og því þyrfti sérstaka vinnu til að ná utan um heildina.
Skýrari tölur eiga að hjálpa við ákvarðanir
Sigurjón sagði mikilvægt að hafa skýrar upplýsingar þegar ákvarðanir væru teknar um málaflokkinn. Betri yfirsýn yfir fjölda, bótagreiðslur, heilbrigðiskostnað og aðra útgjaldaliði myndi auðvelda stjórnvöldum að sjá hvar mætti loka glufum og ná betur utan um útgjöldin.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
