Heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækkar um 1,7%

mjaltarobotVerðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækki um 1,7% hinn 1. janúar nk.  Í tilkynningu segir að afurðastöðvaverð til bænda hækki um 1,24 kr. á lítra mjólkur, úr 86,16 kr. í 87,40 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 1,51 kr. á lítra mjólkur. Samanlögð hækkun heildsöluverðs verður því 2,75 kr. á hvern lítra mjólkur. Þá segir í tilkynningunni að verðhækkunin sé til komin vegna uppsafnaðra hækkana á vinnslu- og rekstrarkostnaði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila