
Heimildarmyndin Um tímann og vatnið (Time and Water) verður frumsýnd við hátíðlega athöfn í Háskólabíói fimmtudaginn 27. ágúst kl. 19:00. Þetta segir í tilkynningu frá Bíó Paradís.
Myndin er á íslensku með enskum texta og fylgir Andra Snæ Magnasyni þegar hann breytir kvikmyndasafni fjölskyldu sinnar í eins konar tímahylki til að varðveita minningar, sögur, tímann og vatnið á sama tíma og jöklar landsins bráðna og eldri kynslóðir hverfa á braut.
Leikstjóri og Andri Snær svara spurningum
Að sýningu lokinni verður boðið upp á spurninga- og svarfund með leikstjóranum Söru Dosa og sögumanni myndarinnar, Andra Snæ Magnasyni.
Einnig verður sérstakur tónlistarflutningur með Ólöfu Arnalds og Skúla Sverrissyni.
Forseti Íslands verður heiðursgestur
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, verður sérstakur heiðursgestur á frumsýningunni.
Miðasala á frumsýninguna er hafin og nálgast má miða með því að smella hér.
