
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um umræðuna um Grænland og áhrif hennar á afstöðu Íslendinga til Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þau sögðu Bandaríkin gerð að óvini Íslands til að beina athyglinni frá mögulegri ESB-aðild og færa landið nær Evrópusambandinu. Arnþrúður benti á að engin skrifleg gögn sýndu að yfirtaka Grænlands væri opinber stefna bandarískra stjórnvalda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Umsóknin frá 2009 enn grundvöllurinn
Arnþrúður sagði nýjar aðildarviðræður myndu byggjast á umsókninni frá 2009 þótt það kæmi ekki skýrt fram í spurningunni sem leggja ætti fyrir þjóðina. Kjósendur hefðu því ekki fengið réttar upplýsingar um grundvöll viðræðnanna.
Guðmundur sagði umræðuna um Donald Trump og Grænland hafa magnast samhliða undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hann taldi að það væri verið að beina athyglinni frá aðildarmálinu með því að draga upp mynd af Bandaríkjunum sem ógn við Ísland. Þetta væri áróðurstengd framsetning.
Pólitískar yfirlýsingar ekki staðreyndir
Arnþrúður sagði nauðsynlegt að greina á milli pólitískra vangaveltna og staðreynda. Trump hefði rætt um mikilvægi Grænlands og sagt Bandaríkin þurfa eyjuna af öryggis- og hernaðarlegum ástæðum. Það jafngilti þó ekki skriflegri stefnu um yfirtöku landsins.
Guðmundur var sammála því og sagði ekkert áþreifanlegt liggja fyrir um að Bandaríkin hygðust beita Grænland valdi. Yfirlýsingar stjórnmálamanna væru pólitísk afstaða en ekki sjálfkrafa sönnun þess að aðgerðir væru fyrirhugaðar.
Sama ætti við um loforð íslenskra ráðamanna um mögulegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins. Slíkar yfirlýsingar væru ekki það sama og skriflegir samningar eða staðfestar niðurstöður.
Langvarandi varnarsamstarf við Bandaríkin
Arnþrúður sagði áhuga Trumps tengjast hernaðarlegri legu Grænlands. Flugleiðir langdrægra eldflauga milli Rússlands og Bandaríkjanna lægju yfir norðurslóðir og eyjan hefði því mikið hernaðarlegt gildi.
Arnþrúður benti á að Bandaríkin hefðu tekið þátt í vörnum Íslands í um 70 ár án þess að reyna að ná íslensku landsvæði undir sig. Hún sagði íslenska ráðamenn með gagnrýni sinni vera að bíta hönd þeirra sem hefði varið landið.
Guðmundur sagði Bandaríkin vera eina ríkið sem héldi uppi raunverulegum vörnum Íslands. Að lýsa þeim sem ógn við landið væri því í andstöðu við áratugalangt varnarsamstarf ríkjanna. Það væri í raun til skammar að íslenskir sjórnmálamenn létu slíkt frá sér fara.
Ferðaþjónustan undir
Guðmundur Franklín sagði ferðaþjónustuna skila um 600 milljörðum króna og vera stærri en útflutning sjávarafurða og áls. Bandaríkjamenn væru stærsti hópur erlendra ferðamanna á Íslandi og eyddu hér mestum fjármunum.
Neikvæður málflutningur íslenskra ráðamanna um Bandaríkin gæti því skaðað mikilvæga efnahagslega hagsmuni Íslands. Guðmundur taldi markmiðið vera að gera Trump og Bandaríkin að óvini svo auðveldara yrði að beina Íslandi að Evrópusambandinu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
