
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson, í Heimsmálunum á Útvarpi Sögu í dag, um viðbrögð Bandaríkjanna við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Guðmundur las í þættinum upp kveðju frá Bandaríkjunum sem send var Íslandi þar sem fram kemur að þau virði fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar og vilji styrkja samstarfið við Ísland á sviði öryggismála, orkumála, nýsköpunar og efnahags- og menningartengsla. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ísland áfram sterkur og verðmætur bandamaður
Í kveðjunni kemur fram að Bandaríkin hafi tekið mið af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, um hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Bandaríkin lýsa því yfir að þau virði fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar og treysti því að Ísland haldi áfram á þeirri braut að vera sterkur og verðmætur bandamaður innan NATO og náinn samstarfsaðili Bandaríkjanna og Evrópu.
Þá segjast Bandaríkin hlakka til að styrkja samstarfið við Ísland á öllum sviðum. Sérstaklega eru nefnd öryggismál, orkumál, nýsköpun og efnahags- og menningartengsl. Markmiðið sé að vinna áfram að sameiginlegri sýn ríkjanna um frið og hagsæld.
Kveðjan er svohljóðandi á ensku:
The United States takes note of Iceland’s August 29 Referendum on whether to resume EU accession negotiations. We respect the sovereign decision of the people of Iceland and express confidence in Iceland’s continuing trajectory as a strong and valuable NATO ally and close partner of the United States and Europe. We look forward to strengthening our partnership with Iceland on all fronts including security, energy, innovation, and economic and cultural ties, to further advance our shared vision of peace and prosperity.
Guðmundur sagði skilaboðin skýr, þau snerust um að styrkja samstarfið við Ísland en ekki veikja það eða hóta landinu.
Fríverslunarsamningur gæti komið til greina
Arnþrúður sagði kveðjuna geta opnað möguleika á enn frekara viðskiptasamstarfi Íslands og Bandaríkjanna og nefndi að jafnvel mætti skoða fríverslunarsamning að einhverju marki.
Guðmundur tók undir það og velti jafnframt upp möguleikanum á gjaldmiðlaskiptasamningi sem gæti meðal annars auðveldað greiðslur fyrir bandarískar vörur með íslenskum krónum.
Hann benti á mikilvægi Bandaríkjanna fyrir íslenska ferðaþjónustu og sagði Bandaríkjamenn vera stærstu viðskiptavini hennar. Hann lagði því áherslu á að Ísland ætti mikilla efnahagslegra hagsmuna að gæta í samskiptunum við Bandaríkin.
Gagnrýndu þögn RÚV um kveðjuna
Í þættinum var bent á að kveðjan hefði ekki fengið umfjöllun hjá RÚV og íslensk stjórnvöld og ráðherrar hefðu ekki vakið athygli á henni.
Kom fram í þættinum að áður hafi forystumenn stjórnarflokkanna, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, talað um ógn sem stafaði af Bandaríkjunum en væru á sama tíma jákvæðir þegar þeir ættu í beinum samskiptum við bandaríska erindreka.
Guðmundur sagði kveðjuna sýna skýran vilja Bandaríkjanna til að halda áfram nánu sambandi við Ísland. Þar væri fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar virt og lýst yfir vilja til að efla samstarfið enn frekar á fjölmörgum sviðum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
