Heimsmálin: ESB dregur úr áhrifum smáríkja – Áfram Ísland stofnað

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um þróun Evrópusambandsins og hvaða áhrif fyrirhugaðar breytingar á reglum um atkvæðagreiðslu innan Evrópusambandsins gætu haft á ný og smærri aðildarríki. Í þættinum kom fram að tillögur um að draga úr kröfu um einróma samþykki í ákveðnum málaflokkum gætu veikt stöðu smáríkja og haft áhrif á fullveldi þeirra. Þetta þýði í raun að Ísland fengi ekki sæti við borðið sem mikið er talað er um en það væri mikið afturhvarf þar sem Ísland hefur sæti við borðið núna við undirbúning löggjafar á grundvelli EES samningsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Neitunarvaldið í hættu

Í þættinum var fjallað um hugmyndir innan Evrópusambandsins um að breyta reglum um ákvarðanatöku þannig að einróma samþykki yrði afnumið í fleiri málaflokkum eins og í öryggis og varnarmálum. Fram kom að slíkar breytingar myndu draga úr áhrifum smáríkja þar sem þau gætu ekki lengur komið í veg fyrir ákvarðanir sem gengju gegn hagsmunum þeirra.

Arnþrúður sagði að neitunarvaldið væri mikilvæg öryggistrygging fyrir smærri ríki og afnám þess myndi færa meira vald til stærstu aðildarríkjanna og stofnana Evrópusambandsins. Slík ákvörðun væri alvarleg fyrir ný aðildarríki sem myndu ekki njóta fulls atkvæðaréttar strax og fyrirhugaðar breytingar gætu haft veruleg áhrif á stöðu þeirra innan Evrópusambandsins.

Ísland missir áhrif

Umræða um aðild Íslands að Evrópusambandinu snerist um mun meira en efnahagsmál. Arnþrúður sagði að Ísland hefði í dag möguleika í gegnum EFTA og EES-samstarfið til að taka þátt í undirbúningi lagasetningar í málum sem varða íslenska hagsmuni. Ísland gæti grundvelli EES samningsins komið sjónarmiðum sínum á framfæri og gert athugasemdir áður en reglur tækju gildi.

Með fullri aðild myndi Ísland missa hluta þess svigrúms og fyrirhugaðar breytingar á atkvæðagreiðslu innan Evrópusambandsins gætu enn frekar dregið úr áhrifum smærri ríkja eins og Íslands ef þjóðin kýs að gerast fullur aðili að ESB.

Áfram Ísland stofnað

Í þættinum ræddi Guðmundur um ný samtök undir heitinu Áfram Ísland sem stofnuð hafa verið í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið á ný. Fram kom að markmið samtakanna væri að hvetja kjósendur til að hafna áframhaldandi aðildarferli og beina athygli að áhrifum aðildar á fullveldi og stjórnskipan Íslands.

Ólafur Ragnar fyrrverandi forseti hjálpar þjóðinni enn á ný

Sérstaklega var rætt um þátt Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, í starfi samtakanna en hann verður einn af frummælendum á stofnfundinum næsta mánudag 6. júlí kl.17:00 á Nasa við Austurvöll. Guðmundur sagði að hann nyti mikils trausts meðal almennings og hefði í forsetatíð sinni staðið með þjóðinni í mikilvægum álitamálum eins og fjölmiðlalögunum 20024 og síðan í Icave málinu sem fylgdi í kjölfar bankahrunsins 2008. Þá var einnig lýst þeirri skoðun að búast mætti við að hann léti meira til sín taka í umræðunni um Evrópusambandið og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu á næstu vikum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila