
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum, á Útvarpi Sögu í dag, um bókun 35 við EES-samninginn og þá ákvörðun sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, gæti þurft að taka ef Alþingi samþykkir frumvarp um breytingar á lögunum um evrópska efnahagssvæðið. Guðmundur telur að forsetinn gæti tryggt sér endurkjör með því að synja lögunum staðfestingar og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann varaði jafnframt við því að staðfesting laganna gæti haft þveröfug áhrif á möguleika hennar til endurkjörs. Arnþrúður taldi málið geta orðið stærstu prófraun forsetans, frá því hún tók við embætti. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þjóðaratkvæðagreiðsla gæti tryggt forsetanum áframhaldandi stuðning
Guðmundur sagði Höllu Tómasdóttur standa frammi fyrir einstöku tækifæri til að styrkja stöðu sína í forsetaembættinu. Ef hún synjaði lögum um bókun 35 staðfestingar og léti þjóðina taka afstöðu til þeirra væri hún að hans mati nánast búin að tryggja sér endurkjör. Hann taldi að almenningur myndi sýna ákvörðuninni skilning og forsetinn gæti með henni tryggt sér stuðning langt fram í tímann. Hann sagði að slík ákvörðun gæti skapað henni forsendur til að gegna embættinu í 10 eða 12 ár, ef hún sjálf vildi.
Guðmundur taldi hins vegar að staðfesting laganna gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir stöðu forsetans. Hann lýsti þeirri afstöðu að Halla yrði ekki endurkjörin ef hún samþykkti frumvarpið og léti það ná fram að ganga án þess að þjóðin fengi að kjósa um það.
Málið stærsta prófraun forsetans – sagðist beita 26.gr. stjórnarskrárinnar
Arnþrúður sagðist fylgjast af miklum áhuga með því hvernig forsetinn myndi bregðast við ef frumvarpið yrði samþykkt. Hún taldi þetta geta orðið stærstu prófraun Höllu Tómasdóttur í forsetaembættinu.
Hún rifjaði upp að Halla hefði komið 2 í viðtal á Útvarp Sögu fyrir forsetakosningarnar og meðal annars rætt við hlustendur í opnum símatíma. Arnþrúður sagði hana þá hafa komið skýrt fram um hlutverk forsetans og að hún myndi beita 26.gr. stjórnarskrárinnar ef henni þætti ástæða til.
Arnþrúður sagðist telja að forsetinn myndi ekki hika við að beita 26. grein stjórnarskrárinnar ef á reyndi. Guðmundur tók undir það og sagði slíka ákvörðun geta orðið eitt mikilvægasta augnablik forsetatíðar hennar og mjög mikilvægt fyrir íslensku þjóðina núna eins og ástandið væri í Evrópusambandinu.
Vill að þjóðin fái síðasta orðið um bókun 35
Guðmundur sagði nauðsynlegt að stöðva framgang frumvarpsins um bókun 35 og forsetinn ætti að nýta heimild sína til að synja lögum staðfestingar. Með því gæfist almenningi kostur á að taka afstöðu til breytinganna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hann spurði hvers vegna Íslendingar ættu ekki að fá að kjósa um bókunina og vísaði til fyrri þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni Evrópusambandsins þar sem meirihluti þjóðarinnar sagði nei. Að hans mati væri ekkert því til fyrirstöðu að þjóðin fengi sjálf að ákveða hvort breytingarnar ættu að ná fram að ganga.
Grundvallarspurning um íslenskt fullveldi
Arnþrúður tók undir mikilvægi þess að kjósendur hefðu síðasta orðið í svo umfangsmiklu máli. Hún taldi að um væri að ræða grundvallarspurningu um íslenskt fullveldi og valdheimildir stofnana landsins.Íslendingar ættu að nýta þau úrræði sem stjórnarskráin veitir.
Samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar taka lög gildi þótt forseti synji þeim staðfestingar en þá skal leggja þau undir þjóðaratkvæði svo fljótt sem kostur er.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
