
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um fyrirhugaðan NATO 3.0 fund í Póllandi þar sem ræða á varnir Evrópu. Ísland er ekki meðal þeirra ríkja sem nefnd hafa verið til þátttöku og í þættinum var spurt hvers vegna landið væri ekki með í hópnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Norðurlönd með en Ísland ekki nefnt
Á fundinum eiga Bandaríkin sagði Guðmundur að koma saman með hópi ríkja til að ræða varnir Evrópu. Finnland, Svíþjóð og Noregur eru meðal þeirra ríkja sem nefnd hafa verið ásamt Hollandi, Þýskalandi og Póllandi.
Ísland hefur hins vegar ekki komið fram á lista yfir þátttökuríki. Sama gildir um Bretland, Frakkland og Eystrasaltsríkin Eistland, Lettland og Litháen.
Þetta vakti sérstaka athygli þar sem Ísland er stofnaðili að NATO og gegnir mikilvægu hlutverki á Norður-Atlantshafi.
Engin dagsetning komin á fundinn
Í umræðunni kom jafnframt skýrt fram að dagsetning fundarins hefði ekki verið ákveðin. Hann ætti að fara fram í október og annar fundur væri síðan fyrirhugaður í desember.
Vantraust gagnvart íslenskum stjórnvöldum?
Þessi staða varð tilefni til vangaveltna um hvers vegna Ísland væri ekki með og hvort það gæti tengst stöðu íslenskra stjórnvalda í samskiptum við Bandaríkin. Í þættinum var þeirri spurningu velt upp hvort skortur á trausti gagnvart íslenskum stjórnvöldum gæti skýrt fjarveru Íslands.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
