
Í þættinum Heimsmálunum þar sem Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson viðskiptafræðing var fjallað um nýleg mótmæli sem fóru fram við umboð bílaframleiðandans Tesla á Íslandi. Mótmælin beindust ekki að starfsemi fyrirtækisins sjálfs heldur að Elon Musk eiganda Tesla. 10 manna hópur safnaðist saman fyrir utan húsnæði Tesla umboðsins og hélt þar uppi skilaboðum með ásökunum um að Tesla væri tengt nasisma. Borgarfulltrúi Pírata var á meðal mótmælenda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Soros fjármagnaði hreyfingu Pírata í upphafi
Fram kom í þættinum að mótmælin hafi ekki verið sjálfsprottin aðgerð heldur hluti af stærri samhæfðum aðgerðum. Hóparnir hafi verið skipulagðir í ýmsum löndum og búnir skilti og borðum með samræmdum boðskap. Fram kom í þættinum að mótmælin hai verið fjármögnuð af sjóðum tengdum George Soros. Fjármögnunin hafi gert kleift að virkja hópa í fjölmörgum löndum samtímis til að mótmæla aðgerðum og stefnu Elon Musk sem hefur verið gagnrýninn á pólitískan rétttrúnað og vókisma. Athygli hafi vakið að á meðal mótmælenda hafi verið einn borgarfulltrúi Pírata en heimildir eru fyrir því að Soros hafi fjármagnað hreyfingu Pírata á Íslandi í upphafi.
Mótmælin notuð sem vopn
Í umræðunni var vakin athygli á því að andstaða ákveðinna hópa við Elon Musk hafi aukist í takt við að hann keypti samfélagsmiðilinn X sem áður hét Twitter. Þar hafi hann breytt ritstjórnarstefnu og aflétt ritskoðun sem leiddi til þess að ákveðnir hópar misstu áhrif. Mótmælin gegn Tesla hafi verið leið til að ráðast gegn honum óbeint með því að beita þrýstingi á fyrirtæki sem hann á eða stýrir. Þá er Elon Musk að stjórna niðurskurðaraðgerðum ríkisstjórnar Bandaríkjanna í gegnum DOGE sem lokaði meðal annars USAID þróunarstofnun Bandaríkjanna fyrir skömmu og hefur vakið mikla athygli.
Spurningar vakna um hlutverk fjölmiðla og gagnrýnisleysi
Í þættinum var einnig fjallað um hvernig fjölmiðlar sögðu frá mótmælunum án þess að skoða bakgrunn þeirra nánar. Fréttaflutningur hafi snúist um þátttakendur og boðskap þeirra en engar spurningar hafi verið bornar upp um hver stæði að baki eða hvað mótmælin kostuðu. Velt var upp hvort fjölmiðlar ættu ekki að sinna því hlutverki að upplýsa um samhengi og fjármögnun slíkra aðgerða frekar en að enduróma þær án gagnrýni.
Ísland hluti af stærri herferð án þess að fá útskýringar
Það kom einnig fram í umræðunni að almenningur á Íslandi sé almennt ekki upplýstur um alþjóðlega tengingu mótmælanna né fjárhagslegan bakgrunn þeirra. Þá var spurt hver borgaði fyrir aðdraganda og framkvæmd mótmælanna. Slíkar aðgerðir skapi hættu á því að Ísland verði vettvangur fyrir hugmyndafræðilega átaka sem eiga sér rætur utan landsins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
