Heimsmálin: Rangar fullyrðingar Þorgerðar um 70% útflutning frá Íslandi til ESB

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum í dag, um fullyrðingar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra um að 70% af útflutningstekjum Íslands komi frá Evrópusambandinu. Í þættinum var talan sögð röng og bent á að ál sem fer um Rotterdam og miklar gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu geti gefið allt aðra mynd af því hvaðan útflutningstekjur Íslands raunverulega koma. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Hlutfallið nær 40%

Í þættinum var vísað til þess að utanríkisráðherra hafi sagt að 70% af útflutningstekjum Íslendinga komi frá Evrópusambandinu. Sú framsetning var gagnrýnd harðlega og vísað til þess að hlutfallið væri í raun rétt rúmlega 40%. Staðreyndin sé sú að útflutningar á áli sé landað í Rotterdam og þaðan flutt til annarra landa og greitt í dollurum. Um sé að ræða 46% af útflutningatekjum Íslendinga.

Sérstaklega var bent á að ferðaþjónustan væri ekki inni í þeim tölum sem vísað væri til þótt gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum og sala flugmiða til útlendinga teljist til útflutningstekna.

Því gefi 70% talan ranga mynd þegar hún er notuð til að lýsa því hversu stór hluti útflutningstekna Íslands komi frá Evrópusambandinu.

Ál fer um Rotterdam

Álútflutningur Íslands var tekinn sérstaklega fyrir í umræðunni. Þar kom fram að stór hluti álsins fari um Rotterdam þar sem því sé umskipað áður en það heldur áfram á endanlegan áfangastað.

Bent var á að álið sé selt í Bandaríkjadölum og á almennum alþjóðlegum markaði. Því sé ekki sjálfgefið að líta á ál sem kemur til Rotterdam sem útflutning sem endanlega fari til Evrópusambandsins.

Í þættinum var þannig varað við því að líta eingöngu á fyrsta áfangastað vörunnar þegar metið er hvert íslenskur útflutningur raunverulega fer.

Ferðaþjónustan breytir heildarmyndinni

Rætt var um, þegar erlendir ferðamenn eyða peningum hér á landi eða flugfélög selja þeim flugmiða í erlendum gjaldeyri teljist þær tekjur til útflutnings.

Þá kom fram að bandarískir ferðamenn væru um 40% erlendra ferðamanna sem koma til Íslands. Þeir eyði hér Bandaríkjadölum og þær tekjur komi inn í íslenskt hagkerfi sem gjaldeyristekjur, án þess að þær falli undir þann útflutning til Evrópusambandsins sem vísað var til í umræðunni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila