
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um stöðuna í Bretlandi undir stjórn Keir Starmer. Þau ræddu um þróun tjáningarfrelsis í Evrópu og auknar aðgerðir gegn fólki vegna skoðana og ummæla. Í þættinum kom fram að Bretland væri komið á hættulega braut þar sem stjórnvöld væru farin að handtaka og fangelsa fólk fyrir skoðanir sínar á sama tíma og talað væri um frelsi og lýðræði. Nú væru rúmlega 12. 500 manns í fangelsi í Bretlandi vegna skoðana sinna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Starmer undir vaxandi þrýstingi
Í umræðunni kom fram að Keir Starmer forsætisráðherra ætti undir högg að sækja og ríkisstjórn hans stæði frammi fyrir vaxandi gagnrýni vegna þróunar tjáningarfrelsis í Bretlandi. Stjórnvöld í Bretlandi væru að banna fólki að koma til landsins vegna skoðana sinna og sagði Guðmundur að 11 einstaklingum hefði nýlega verið meinað að ferðast til Bretlands til að taka þátt í ráðstefnu sem Tommy Robinson hafi haldið.
Þetta sýndi hvernig stjórnvöld væru farin að stjórna opinberri umræðu og þrengja að fólki sem hefði aðrar skoðanir en ráðandi stjórnmálaöfl.
Rúmlega 12.500 manns fangelsaðir eða handteknir vegna ummæla sinna
Í þættinum var fjallað um tölur sem sýna fjölda einstaklinga sem hafa verið handteknir eða fangelsaðir vegna ummæla og skoðana. Kom fram að rúmlega 12.500 manns hafa verið handteknir eða fangelsaðir í Bretlandi vegna tjáningar sinnar. Þá kom einnig fram að í Þýskalandi hefðu 3.500 verið fangelsaðir og rúmlega 6000 manns í Hvíta Rússlandi.
Í þættinum var rætt um þróunina í Vestur-Evrópu þar sem ríki, sem kenna sig við lýðræði, væru farin að beita aðferðum sem áður voru tengdar austantjaldsríkjum. Stöðugt væri talað um frelsi en í raun væri það öfugmæli það sem fólki væri refsað fyrir skoðanir sínar.
Vókismi, gervi – elíta og stimplun andstæðinga
Í þættinum kom fram hörð gagnrýni á vókismann og því haldið fram að fólk sem gagnrýndi innflytjendamál, kynfræðslu eða stefnu vinstrimanna oft vera stimplað sem rasista, öfgahægri eða hættulegt fólk. Þessi þróun hafi breiðst út um Bretland, Evrópu og Ísland þar sem stjórnmálamenn, fjölmiðlar og gervi-elíta reyndu að útiloka skoðanir sem gengju gegn hugmyndafræði vókismans.
Bretland og Evrópa á rangri leið
Í umræðunni var einnig farið yfir stöðu Evrópu almennt og hvernig stjórnvöld í Bretlandi og Evrópusambandinu væru að missa tengsl við almenning. Kom fram að gervi-elítur í Evrópu reyndu að stjórna umræðunni með ritskoðun, pólitískri stimplun og auknu eftirliti með skoðunum fólks. Þróunin hafi aukið stuðning við hægrisinnaðar og íhaldssamar hreyfingar víða um Evrópu og Bandaríkjunum og almenningur væri að hafna vókismanum sem hefur ríkt undanfarin ár.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
