
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum um gullhúðaða styttu af Donald Trump, Bandaríkjaforseta í Evrópuþinginu í Strassborg, þar sem forsetinn væri sýndur nakinn og gullhúðaður. Þau töldu verkið sýna það hugarfar sem væri orðið ráðandi innan evrópskra stofnana og gagnrýndu harðlega að slík framsetning á forseta Bandaríkjanna væri höfð til sýnis í þinghúsinu. Þetta væri hneyksli og Ursulu von der Leyen til skammar að heimila gjörning sem þennan í virðulegu þinghúsi. Þetta væri sama fólkið og ætti að setja lög fyrir Íslendinga ef við færum í Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Nakin styttan kölluð „Appelsínugula plágan“
Styttan sýnir Trump gullhúðaðan og nakinn sitjandi á herðum grannvaxins manns sem á að tákna fátækan og hungraðan einstakling. Verkið ber heitið „Appelsínugula plágan“ og stendur í anddyri Evrópuþingsins.
Guðmundur sagði að verkið væri ekki sýnt í hefðbundnu listasafni heldur innan einnar helstu stofnunar Evrópusambandsins.
Framsetningin gengi langt út fyrir hefðbundna pólitíska ádeilu og sýna ákveðinn eineltis- og niðurlægingarbrag gagnvart bandaríska forsetanum.
Spurt hvernig brugðist yrði við nakinni konu
Arnþrúður velti því fyrir sér hvernig tekið yrði í sambærilega framsetningu ef kona í æðstu valdastöðu væri viðfangsefnið.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands væri gott dæmi sagði Arnþrúður og spurði hvernig Íslendingar myndu bregðast við ef sambærileg stytta af henni væri sett upp í erlendu þinghúsi. Fleiri dæmi voru einnig nefnd með öðrum evrópskum leiðtogum.
Áherslan var á hvort sama umburðarlyndi gagnvart verkinu væri fyrir hendi ef kyni viðfangsefnisins væri snúið við.
Verkið sýnir hugarfarið
Styttan var í Heimsmálunum sett fram sem dæmi um meira en smekk eða einstakt listaverk. Hún væri birtingarmynd þess hugarfars sem væri orðið áberandi innan Evrópuþingsins og þeirra stjórnmálaafla sem þar ráða miklu. Þarna bætu ábyrgð forráðamenn Evrópusambandsins sem sýndu sitt rétta andlit og það væri umhugsunarvert að þetta væri sama fólkið og kæmi til með að setja lög fyrir Íslendinga ef við færum í ESB.
Guðmundur sagði að hafa þyrfti í huga að Bandaríkin væru mikilvægasta varnarsamstarfsríki stórs hluta Evrópu á sama tíma og forseti þeirra væri settur fram með þessum hætti innan þinghúss Evrópusambandsins.
Fram kom að verkið segði mikið um innrætið í þeirri pólitísku menningu sem hefði þróast innan Evrópu og framsetningin væri langt frá þeirri virðingu og diplómatíu sem eðlilegt væri að vænta í samskiptum bandalagsríkja.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
