Heimsmálin: Varnir Kanada á Íslandi væru sýndarmennska

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson, ræddu í Heimsmálunum, um fréttir af fyrirhugaðri aukinni aðkomu Kanada að varnar- og öryggismálum Íslands. Guðmundur dró mjög í efa að Kanada hefði burði til að gegna verulegu hlutverki í vörnum landsins og lýsti hugmyndum um slíkt sem sýndarmennsku. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Efast um hernaðarlega getu Kanada

Í umræðunni kom fram að rætt hefði verið um kanadískan mannskap á Íslandi og aukna aðkomu Kanada að vörnum landsins og kafbátaeftirliti. Bent var á að lítið hefði komið fram um hvaða ógn slík viðvera ætti að mæta, hversu mikinn mannskap Kanada hygðist senda eða hvert nákvæmt hlutverk hans yrði.

Vísað var til þess að kanadíski herinn væri fámennur miðað við þau gríðarstóru svæði sem landið þarf sjálft að sinna, allt frá norðurslóðum og Íshafi yfir að Kyrrahafi.

Sama gilti um kafbátaflotann. Þar var bent á að Kanada hefði aðeins fáa og gamla dísilknúna kafbáta í þjónustu og að nýr búnaður sem rætt hefði verið um væri enn langt undan.

Bandaríkin áfram burðarás varna Íslands

Fram kom að hugmyndin um að Kanada gæti tekið að sér varnir Íslands væri óraunhæf þegar litið væri til getu Bandaríkjanna og þess varnarsamstarfs sem þegar hefur verið byggt upp hér á landi.

Bandaríkin hafa fjárfest mikið í aðstöðu á Íslandi og bandarísk starfsemi tengd eftirliti og vörnum hefur farið vaxandi. Þar var meðal annars bent á uppbyggingu mannvirkja og aðstöðu sem nýtist hernaðarlegri starfsemi og eftirliti á Norður-Atlantshafi.

Varnarsamningurinn við Bandaríkin mikilvægastur allra samninga

Varnarsamningurinn við Bandaríkin væri einn mikilvægasti samningur sem Ísland hefði gert. Lega landsins á Norður-Atlantshafi breyttist ekki og því væri eðlilegra að styrkja áfram það samstarf sem þegar væri fyrir hendi en að setja upp nýtt varnarfyrirkomulag með ríki sem hefði mun minni hernaðarlega getu.

Kanada og Bandaríkin ekki í sömu stöðu

Aukin aðkoma Kanada var einnig sett í samhengi við breytt samskipti Kanada við Evrópu og umræðu um nánari tengsl við Evrópusambandið. Á sama tíma væru samskipti Kanada og Bandaríkjanna ekki vandræðalaus og því væri varhugavert að búa til þá mynd að Kanada gæti komið í stað Bandaríkjanna í varnarmálum Íslands.

Ísland hefði ekkert eigið herlið sem gæti tekið við ef alvarleg staða kæmi upp. Þess vegna skipti mestu að byggja á varnarsamstarfi við ríki sem hefði raunverulega getu til að sinna vörnum landsins og Norður-Atlantshafsins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila