Hildur: Hafna alfarið Borgarlínunni í núverandi mynd

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í síðdegisútvarpinu í dag, um samgöngumál í borginni. Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn hafna Borgarlínunni alfarið í núverandi mynd og vilja endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Fyrirhugað sé að leggja veggjöld sem sérstakan skatt á borgarbúa til að fjármagna samgöngusáttmálann. Hún sagði verkefnið byggja á þeirri hugmyndafræði að þrengja markvisst að bílaumferð til að neyða fólk yfir í almenningssamgöngur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Borgarlínan byggð á hugmyndafræði þrenginga

Hildur sagði Borgarlínuna ekki snúast um að bæta samgöngur heldur um að gera fólki erfiðara fyrir að nota einkabílinn. Hún sagði hugmyndafræðina að baki verkefninu felast í því að þrengja akreinar, lengja tafir og draga úr aðgengi bíla, þannig að fólk neyðist til að velja Borgarlínuna. Hún nefndi sérstaklega breytingar við Höfðabakka og Sæbraut þar sem akreinum hefði verið fækkað með auknum töfum í kjölfarið. Að hennar mati væri þetta ekki mistök heldur meðvituð stefna borgaryfirvalda.

Hildur sagði sömu nálgun sjást í áformum um breytingar á Suðurlandsbraut þar sem þrengingum á umferð, sé ætlað að skapa meiri forgang fyrir Borgarlínuna.

Vill hraðvagnakerfi í stað Borgarlínu

Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn styðja öflugar almenningssamgöngur en vilja allt annað kerfi en Borgarlínuna. Hún sagði flokkinn vilja þróa hraðvagnakerfi með sérakreinum og forgangi á umferðarljósum án þess að þrengja að almennri bílaumferð. Að hennar mati er núverandi Borgarlína bæði of dýr og óraunhæf. Hún sagði verkefnið hafa staðið yfir árum saman án þess að samgöngur hefðu batnað fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Sjálfstæðisflokkurinn vill samkvæmt Hildi fara strax í viðræður við ríkið og nágrannasveitarfélög um að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni.

Segir veggjöld verða nýjan skatt á Reykvíkinga

Hildur gagnrýndi einnig harðlega fyrirhuguð veggjöld sem eiga að fjármagna samgöngusáttmálann. Hún sagði fyrir liggja að innheimta eigi um 143 milljarða króna með gjaldtöku á fjölförnum leiðum innan borgarinnar frá 2030 til 2040. Að hennar mati er verið að leggja nýjan skatt á Reykvíkinga sem þegar búi við háa skattbyrði. Hún sagði óásættanlegt að fólk þurfi að greiða sérstaklega fyrir að keyra til vinnu eða fara með börn sín í skóla og leikskóla.

Vill hraða öðrum samgönguframkvæmdum

Í stað Borgarlínunnar vill Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt Hildi hraða öðrum framkvæmdum sem geti skilað árangri fyrr. Þar nefndi hún snjall ljósastýringar, mislæg gatnamót við Sprengisand, Sundabraut og Miklubrautargöng. Hildur sagði ekki ásættanlegt að íbúar höfuðborgarsvæðisins þurfi að bíða fram yfir árið 2040 eftir lausnum á stærstu umferðaræðum borgarinnar á meðan tafir og umferðarteppur versni ár frá ári.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila