
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hyggst í dag ræða við oddvita þeirra flokka sem helst koma til greina í meirihlutasamstarfi eftir borgarstjórnarkosningarnar á laugardag. Um er að ræða Ara Edwald fyrir Miðflokkinn, Björgu Magnúsdóttur fyrir Viðreisn og Einar Þorsteinsson fyrir Framsóknarflokkinn. Frá þessu var greint á vef Mbl í morgun
Sjálfstæðisflokkurinn varð stærsti flokkurinn í kosningunum og er því í lykilstöðu við myndun nýs meirihluta í borgarstjórn. Að sögn Hildar koma helst til greina annars vegar tveggja flokka meirihluti með Miðflokknum og hins vegar þriggja flokka samstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks.
Ari segir niðurstöðuna kalla á viðræður við Sjálfstæðisflokkinn
Ari Edwald segir Miðflokkinn hafa unnið hlutfallslega stærsta sigur kosninganna. Hann segir því eðlilegt að flokkarnir tveir ræði saman um myndun tveggja flokka meirihluta. Þá leggur hann áherslu á að Miðflokkurinn ætli að standa við þau kosningaloforð sem flokkurinn hafi sett fram.
Ari segir jafnframt að Miðflokkurinn útiloki samstarf við Samfylkinguna þar sem of langt sé á milli flokkanna í stefnumálum, en að öðru leyti hafi flokkurinn ekki útilokað samstarf við aðra flokka.
Viðreisn og Framsókn jákvæð til viðræðna
Björg Magnúsdóttir segir viðræður sínar við Hildi Björnsdóttur hafa verið á góðum nótum og að henni geti vel hugnast samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki í nýjum meirihluta.
Einar Þorsteinsson segir sömuleiðis að Framsóknarflokkurinn sé tilbúinn til viðræðna um nýjan meirihluta frá miðju til hægri í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann segist frekar vilja sitja í meirihluta en minnihluta og geti vel hugsað sér að starfa aftur með Björgu Magnúsdóttur, sem áður var aðstoðarmaður hans þegar hann gegndi embætti borgarstjóra.
Einar tekur fram að Framsókn útiloki aðeins samstarf við Samfylkinguna og segir kallað hafa verið eftir skýrum breytingum í borgarstjórn Reykjavíkur eftir kosningarnar.
