
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í Síðdegisútvarpinu um íþróttamál, útivist og stöðu íþróttafélaga í Reykjavík. Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja gera Reykjavík að „Íþróttaborginni Reykjavík“ með markvissri uppbyggingu íþróttaaðstöðu, auknum stuðningi við börn og ungmenni í skipulögðu starfi og bættri nýtingu útivistarsvæða borgarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Íþróttafélög segja borgina hafa ekki staðið við samninga
Hildur sagði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafa átt fundi með íþróttafélögum víða um Reykjavík á síðustu vikum og mánuðum. Þar hafi komið fram mikil óánægja með samskipti við borgaryfirvöld og stöðu íþróttamannvirkja. Samkvæmt Hildi standa mörg félög á samningum sem Reykjavíkurborg hafi ekki efnt að fullu og sum þeirra búi við aðstöðu sem sé orðin ófullnægjandi fyrir starfsemina. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn ætla að hefja heildarkortlagningu á stöðu íþróttafélaga á fyrstu hundrað dögum nýs kjörtímabils og vinna tímasetta áætlun um úrbætur.
Hún sagði mikilvægt að borgin styddi betur við íþróttafélögin þar sem þau gegndu lykilhlutverki í uppeldi barna og ungmenna og sinntu samfélagslegu hlutverki langt umfram hefðbundið íþróttastarf.
Sérstök áhersla á börn af erlendum uppruna
Í viðtalinu lagði Hildur sérstaka áherslu á verkefnið „Allir æfa“, sem Sjálfstæðisflokkurinn vill hrinda í framkvæmd. Markmiðið væri að tryggja að öll börn í Reykjavík tækju þátt í skipulögðu íþrótta- eða tómstundastarfi. Hún sagði sérstaklega mikilvægt að ná betur til barna sem stæðu höllum fæti félagslega eða fjárhagslega og barna af erlendum uppruna sem væru síður í skipulögðu starfi en önnur börn. Að hennar mati gætu íþróttafélög gegnt mikilvægu hlutverki við að kenna íslensku, styrkja félagslega þátttöku og auðvelda aðlögun barna að íslensku samfélagi.
Heiðmörk, skíðasvæði og sundlaugar
Þá sagði Hildur Reykjavík hafa einstaka stöðu þegar kæmi að útivist og hreyfingu. Hún nefndi meðal annars Heiðmörk, gönguleiðir, hestaleiðir, sjósund, Elliðaárnar og skíðasvæði borgarinnar. Hún gagnrýndi áform borgaryfirvalda um að loka stórum hluta Heiðmerkur fyrir bílaumferð og sagði mikilvægt að útivistarsvæðið héldi áfram að vera aðgengilegt fjölskyldum og almenningi. Jafnframt sagði hún Sjálfstæðisflokkinn vilja byggja upp skíðasvæðið í Skálafelli að nýju og lengja opnunartíma sundlauga aftur til klukkan tíu á kvöldin. Hún sagði einnig að skoðað yrði hvort sumar sundlaugar gætu verið opnar til miðnættis yfir sumartímann.
Benti Hildur á að sundlaugar geta gegnt mikilvægu hlutverki fyrir unglinga sem hefðu takmarkað úrval af öruggum samverustöðum á kvöldin. Hún taldi mikilvægt að borgin skapaði fleiri heilbrigð félagsleg rými fyrir ungt fólk utan skólatíma.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
