Hinsegin dagar hófust í dag með formlegri setningu við Iðnó

Hinsegin dagar hófust í dag með formlegri setningu við Iðnó í Reykjavík. Hátíðin stendur til 9. ágúst en hátíðin er ein stærsta hátíð sem fram fer í Reykjavík ár hvert. Eins og fyrri ár verður fjölbreytt dagskrá um allt höfuðborgarsvæðið í tilefni hátíðarinnar. Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, setti hátíðina formlega og rifjaði upp sögu hennar. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, flutti einnig ávarp við athöfnina.

Lag hátíðarinnar flutt og Pride-fáninn dreginn að húni

Að loknum ávörpum var Pride-fáninn dreginn að húni á fánastöngunum við göngubrúna hjá Iðnó. Guðjón Þorgils flutti jafnframt lag Hinsegin daga í ár, Fram á við, sem hann samdi ásamt Ingu Auðbjörgu og Axel Inga.

Gestum bauðst einnig að taka þátt í fjölskyldudagskrá með föndri og krítarskilaboðum á stéttina fyrir framan Pride Centre í Iðnó, þar sem Hinsegin Kaupfélagið er til húsa.

Gleðigangan fer fram á laugardag

Hápunktur hátíðarinnar verður Gleðigangan sem fer fram laugardaginn 8. ágúst. Gangan hefst stundvíslega klukkan 14:00 við Hallgrímskirkju og liggur þaðan niður Skólavörðustíg, um Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg. Henni lýkur við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar og halda dagskráratriði síðan áfram í Hljómskálagarði þar sem útitónleikar fara fram.

Dagskrá Hinsegindaga má skoða með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila