Hlíðaskóli og Norðlingaskóli komin í úrslit Skrekks

Atriði Norðlingaskóla en þar var jafnréttið í forgrunni

Hlíðaskóli og Norðlingaskóli tryggðu sér sæti í úrslitum Skrekks 2026 á þriðja og síðasta undanúrslitakvöldi keppninnar sem fram fór í Borgarleikhúsinu miðvikudagskvöldið 11. nóvember. Alls tóku 285 ungmenni þátt í atriðum kvöldsins og hefur þátttakendafjöldi í keppninni í ár verið 791.

Níu grunnskólar tóku þátt í undanúrslitakvöldinu. Þeir voru Austurbæjarskóli, Fellaskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Hólabrekkuskóli, Ingunnarskóli, Norðlingaskóli og Ölduselsskóli.

Tjáning og réttindabarátta kvenna í siguratriðunum

Hlíðaskóli komst áfram með atriðið Heimsendir, sem fjallar um mikilvægi þess að tjá hugsanir sínar og tilfinningar áður en það er orðið of seint. Í atriðinu er jafnframt lögð áhersla á að það sé í lagi að vera hræddur.

Í atriði Hlíðarskóla var þemað tjáning

Norðlingaskóli tryggði sér sæti í úrslitum með atriðinu Frjálsari í gær, sem fjallar um skerðingu á réttindum kvenna. Atriðið er samið til heiðurs konum víða um heim sem hafa barist fyrir réttindum kvenna.

Sex skólar hafa tryggt sér sæti í úrslitum

Með úrslitum miðvikudagskvöldsins liggur fyrir hvaða sex skólar hafa komist áfram úr undanúrslitum Skrekks 2026.

Á fyrsta undanúrslitakvöldinu, mánudaginn 9. nóvember, komust Breiðholtsskóli og Klébergsskóli áfram. Breiðholtsskóli keppti með atriðið Dulan, sem sækir innblástur í íslenskar vögguvísur og draugasögur, en Klébergsskóli flutti atriðið Sveitin er geitin, sem fjallar um líkindi lífsins í sveit og borg.

Á öðru undanúrslitakvöldinu, þriðjudaginn 10. nóvember, tryggðu Árbæjarskóli og Langholtsskóli sér sæti í úrslitum. Árbæjarskóli flutti atriðið Bestu ár ævi þinnar, um mótsagnakenndar ráðleggingar sem unglingar fá, en Langholtsskóli keppti með Frelsinu fögnum, sem fjallar um frelsi barna og áhrif reglna fullorðinna á gleði barnæskunnar.

Hlíðaskóli og Norðlingaskóli bætast nú í þennan hóp og munu skólarnir sex keppa til úrslita í Skrekk 2026.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila