Hörð barátta fram undan um Íslandsmeistaratitilinn í skák

Kristján Örn Elíasson ræddi við Gunnar Frey Rúnarsson, formann Víkingaklúbbsins og Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan skákmeistara, í þættinum Við skákborðið, um baráttuna sem fram undan er í efstu deild Íslandsmóts skákfélaga. Nokkur sterk lið geta blandað sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn en á sama tíma blasir við að öflugt lið þarf að falla úr deildinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

KR og Fjölnir í sterkri stöðu

Björn sagði KR-inga líklega til afreka en benti á að óvíst væri hversu vel upplagðir þeir yrðu. Liðið hefði verið með titilinn í hendi sér á síðasta tímabili en misst hann frá sér undir lokin.

Fjölnir kemur einnig sterkt inn í baráttuna. Björn sagði liðið líklegt til árangurs ef það héldi áfram á sömu braut og áður. Hann taldi KR og Fjölni því standa vel að vígi í baráttunni en úrslitin gætu ráðist af því hvernig liðsstyrkurinn og frammistaðan þróast þegar keppnin hefst.

Baráttan verður ekki síður hörð neðar í deildinni. Breiðablik og Taflfélag Reykjavíkur björguðu sæti sínu á síðasta tímabili og fleiri lið geta lent í erfiðri stöðu þegar líður á keppnina.

Íslandsmeistararnir mæta með íslenskt lið

Vestmannaeyingar mæta til leiks sem ríkjandi Íslandsmeistarar eftir að hafa unnið efstu deildina á aldarafmælisári Taflfélags Vestmannaeyja.

Björn sagði liðsstyrkinn minnka frá síðasta tímabili en barátta yrði áfram í liðinu. Vestmannaeyingar ætluðu þó ekki endilega að verja Íslandsmeistaratitilinn með kjafti og klóm. Liðið verður eingöngu skipað Íslendingum og Björn taldi það eiga að duga til að halda sæti félagsins í deildinni.

Titillinn á aldarafmælisárinu hefði verið stóra verkefnið og krafist mikils af liðinu. Mikil ánægja væri með að hafa náð því markmiði enda yrði aldrei tekið af félaginu að hafa orðið Íslandsmeistari á afmælisárinu.

Sterkt lið þarf að falla

Kristján Örn benti á að allt stefndi í spennandi keppni þar sem nokkur lið gætu blandað sér í titilbaráttuna. Jafnræðið hefði jafnframt þá afleiðingu að eitt gott lið þyrfti að falla úr efstu deild.

Umræðan snerist því ekki aðeins um hvaða félag lyfti Íslandsmeistaratitlinum heldur einnig um harða baráttu liðanna um að halda sæti sínu meðal þeirra bestu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila