
Kristján Örn Elíasson ræddi við Ólaf F. Ásgrímsson, fyrrverandi bankamann, og Jon Olav Fivelstad tölvunarfræðing í þættinum Við skákborðið. Þeir eru báðir alþjóðlegir skákdómarar og hafa um árabil starfað innan íslensku skákhreyfingarinnar. Jon Olav sagði frá Evrópumóti heyrnarskertra skákmanna sem haldið var í Stavanger í Noregi í september. Þar háðu Pólverjar og Úkraínumenn harða baráttu um efstu sætin í sveitakeppninni og aðeins örlítið oddastig skildi sveitirnar að. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Mjótt á munum milli Pólverja og Úkraínumanna
Skákmenn frá flestum Evrópuþjóðum tóku þátt í mótinu í Stavanger, þar sem bæði var keppt í einstaklingskeppni og sveitakeppni. Keppnirnar fóru fram í sama sal og voru aðskildar með gangi.
Jon Olav hafði sérstaklega gaman af því að fylgjast með sveitakeppninni. Þar voru Pólverjar og Úkraínumenn sterkastir og keppnin afar jöfn. Að lokum skildi aðeins örlítið oddastig á milli efstu sveitanna.
Rússneskir skákmenn voru ekki meðal þátttakenda þar sem þeir voru í banni.
Til að öðlast þátttökurétt á mótinu þurftu keppendur að hafa misst að minnsta kosti 50 desíbel af heyrn, sem Jon Olav sagði vera talsverða heyrnarskerðingu.
Óvenjulegar aðstæður við skákborðið
Jon Olav rifjaði upp sérstaka reynslu af dómgæslu þegar upp kom mál sem varðaði breskan skákmann með verulega skerta sjón auk heyrnarskerðingar. Skákmaðurinn hafði um 22% sjón og notaði spjaldtölvu til að fylgjast með skákinni. Hefðbundnir svartir og hvítir litir taflmannanna hentuðu honum illa og því þurfti að nota aðra liti svo hann gæti greint stöðuna.
Samskiptin kröfðust einnig aðstoðar túlka. Stundum þurfti tvo túlka, annan fyrir norskt táknmál og hinn fyrir alþjóðlegt táknmál, auk samskipta við aðstoðarkonu skákmannsins.
Í einu tilviki kom upp misskilningur vegna beiðni hans um að gera hlé á skákinni. Eftir nokkrar umræður var beiðnin samþykkt og fékk hann að fara fram að fá sér tebolla.
Skákstaðan geymd í huganum
Kristján Örn rifjaði upp að sjónskertir skákmenn hefðu einnig tekið þátt í Reykjavíkurskákmótinu. Þar hefðu verið notuð sérstök skákborð með götum fyrir taflmennina, svo hægt væri að þreifa á þeim og átta sig á stöðunni. Breska skákmanninum í Stavanger hafði verið boðið slíkt borð en hann kaus fremur að nota spjaldtölvuna.
Jon Olav útskýrði að reyndir skákmenn gætu haft stöðuna í huganum án þess að þurfa stöðugt að sjá borðið. Skákborðið væri þá fyrst og fremst til að auðvelda þeim að fylgjast með taflinu.
Keppendurnir eins og ein stór fjölskylda
Jon Olav lýsti mótinu í Stavanger sem einu skemmtilegasta skákmóti sem hann hefði starfað við. Dómararnir gátu rætt sín á milli með venjulegum hætti og túlkar sáu um að miðla upplýsingum til keppenda. Hann fór sjálfur smám saman að læra hvað ýmis tákn merktu.
Það sem stóð þó sérstaklega upp úr var andrúmsloftið meðal skákmannanna. Margir þeirra þekktust vel frá fyrri mótum og hittust reglulega í keppnum.
Jon Olav sagði að keppendurnir hefðu verið eins og ein stór fjölskylda sem kæmi saman í heila viku til að tefla og njóta samverunnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
