Hryðjuverkið í Berlín mun hafa pólitísk áhrif

haukurhauks-003Hryðjuverkið sem framið var í Berlín í gær mun án efa hafa áhrif á pólitíska framtíð Angelu Merkel kanslara Þýskalands að mati Hauks Haukssonar fréttamanns í Moskvu. Haukur sem var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag segir að eðli málsins samkvæmt hafi málið þó ekki einungis áhrif á pólitíkina „ þetta er mjög erfitt fyrir almenning og það að menn geti ekki farið með börnin sín á jólamarkaðina í Berlín og þurfa að óttast þetta í Þýskalandi sjálfu og að þjóðverjar þurfi að óttast að fara út á kvöldin eru auðvitað ömurlegar fréttir„,segir Haukur.  Þátturinn verður endurfluttur í kvöld kl.22:00.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila