Hugmyndafræði um kúgara og kúgaða hefur náð fótfestu í kennaramenntun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Valgerði Snæland Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra og kennara til margra ára, í síðdegisútvarpinu í dag, um svokallaða gagnrýna kenningu og áhrif hennar á kennaramenntun. Valgerður lýsti kenningunni sem hugmyndafræði þar sem samfélagið er greint út frá valdahlutföllum milli kúgara og kúgaðra og sagði hana hafa náð fótfestu á menntavísindasviði. Arnþrúður spurði hvernig slíkar hugmyndir kæmust smám saman inn í skólakerfið án þess að almenningur áttaði sig endilega á uppruna þeirra. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samfélagið greint út frá kúgurum og kúguðum

Gagnrýnin kenning, „critical theory“, byggir samkvæmt lýsingu Valgerðar á þeirri forsendu að samfélagið mótist af falinni valdbeitingu og kerfi kúgara og kúgaðra.

Leitað sé að valdi, mismunun og kúgun innan samfélagsins og aðstæður túlkaðar út frá þeirri sýn. Ræturnar liggi í marxískri hugsun og sami hugmyndafræðilegi grunnur sé undir woke-stefnunni sem hún fjallaði um í þættinum.

Þetta sé því annað og meira en almenn gagnrýnin hugsun, þótt hugtökin geti við fyrstu sýn hljómað áþekk.

Fræðin kennd á menntavísindasviði

Valgerður sagðist vita um meistaranema á menntavísindasviði Háskóla Íslands sem ynnu verkefni tengd gagnrýninni kenningu og að fræðin væru kennd þar.

Arnþrúður benti á að nemendurnir væru sjálfir í góðri trú. Valgerður tók undir það en sagði hugmyndafræðilega sagan að baki hugtökum á borð við gagnrýna vitund og gagnrýna hugsun ekki alltaf fylgja með.

Þannig gætu nemendur tileinkað sér ákveðna fræðilega nálgun án þess að fá jafnframt fulla mynd af rótum hennar og þeirri samfélagssýn sem hún byggði á.

Paulo Freire hafði mikil áhrif

Valgerður nefndi Paulo Freire sérstaklega og sagði áhrif hans hafa orðið mikil innan háskólastofnana og kennaramenntunar.

Hún setti hugmyndir hans í samhengi við gagnrýna kenningu og þá nálgun að skoða samfélagið út frá ríkjandi valdahlutföllum og sjónarhorni þeirra sem skilgreindir eru sem kúgaðir.

Þess vegna þurfi að fara ofan í hugmyndafræðilegan bakgrunn þeirra fræða sem kennd eru verðandi kennurum. Aðeins þannig sé hægt að skilja hvernig ákveðnar hugmyndir berist áfram úr kennaramenntun og inn í íslenskt skólastarf.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila