HÚH! Stuðningshátíð haldin í miðborg Moskvu

Sendiráð Íslands í Moskvu, Tólfan og Íslandsstofa ætla að blása til hátíðar í miðborg Moskvu næstkomandi laugardag til stuðnings íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem nú er statt á HM. Á hátíðinni mun meðal annars Tólfan tromma undir víkingaklappinu víðfræga og þá mun tónlistarmaðurinn Friðrik Dór troða upp.

Fram kemur í tilkynningu að búast megi við rafmagnaðri stemningu á viðburðinum en í tilkynningu segir meðal annars „Þar sem hið opinbera stuðningsmannasvæði (,,Fan Fest”) er í töluverðri fjarlægð frá Spartak-leikvanginum þar sem leikurinn fer fram, fékk sendiráðið sérstakt leyfi borgarstjórans í Moskvu til að skapa alvöru íslenska stuðningshátíð í miðborginni. Upphitunin fyrir þennan sögulega leik fer því fram í Zaryadye-garðinum í hjarta miðborgarinnar, rétt við Rauða torgið og Kreml. Gleðin hefst klukkan ellefu og stendur í tvær klukkustundir. Afar auðvelt er að komast í Zarayadye-garðinn þar sem flestar neðanjarðarlestarlínur borgarinnar stoppa í grennd við hann. Um klukkan eitt þurfa þeir sem ætla á völlinn að leggja af stað enda er mælt er með því að mæta þangað ekki seinna en tveimur tímum fyrir leik. Það er bæði öruggast og fljótlegast að taka neðanjarðarlest. Frá Kitay Gorod-stöðinni, sem er í um fimm mínútna fjarlægð frá Zarayadye-garðinum, er hægt að taka línu númer 7 beint á Spartak-leikvanginn og tekur ferðin rúmlega hálftíma“.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila