Hundruð minka sluppu úr minkabúi í Mosfellsdal

Nokkur hundruð minkar sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Tilkynning um atvikið barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan sjö.

Samkvæmt upplýsingum var brotist inn á búið og þar unnin skemmdarverk með þeim afleiðingum að minkarnir komust út. Lögregla hefur hafið rannsókn á málinu. Samkvæmt lögreglu er rannsóknin á frumstigi.

Viðeigandi stjórnvöld og eftirlitsstofnanir hafa verið upplýst um atvikið og brugðist við.

Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila