Byggingarmálaráðherrar vilja sjá ódýrara húsnæði og aðgerðir í þágu loftslagsins

Ráðherrar loftslagsmála vilja aðgerðir í húsnæðismálum í þágu loftslagsins

Í yfirlýsingu sem byggingar- og húsnæðismálaráðherrar Norðurlandanna hafa komið sér saman um kemur fram að draga þurfi úr losun koltvísýrings frá húsnæði og byggingariðnaði á Norðurlöndum. Eins að greinin ætti að leggja aukna áherslu á hringrásarhagkerfi. Ráðherrarnir vilja sömuleiðis sjá aukið norrænt samstarf til að efla samkeppni og lækka húsnæðiskostnað. Þeir funduðu á Hótel Sögu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu.

Í tilkynningunni segir að meira en þriðjungur af losun norrænu landanna á koltvísýringi komi frá húsnæði og byggingariðnaði. Því vilji hinir norrænu ráðherrar húsnæðis- og byggingarmála bregðast við. Þeir hafi því komið sér saman um yfirlýsingu þar sem áhersla er lögð á þörfina fyrir aukið samstarf í því skyni að draga úr losun frá húsnæði og byggingariðnaði.

Samkvæmt yfirlýsingunni skuldbinda ráðherrarnir sig til að leitast við að vera í fararbroddi á heimsvísu svo Norðurlönd geti orðið það svæði sem mest sækir fram í því að þróa lausnir sem draga úr losun í byggingariðnaði.

Markmiðinu um að gera Norðurlönd að kolefnishlutlausu svæði, sem norrænu forsætisráðherrarnir samþykktu á fundi sínum í ágúst, verður ekki náð nema húsnæðis- og byggingariðnaðurinn bregðist hratt við. Það er löngu tímabært að byggingariðnaðurinn hætti að vera hluti af loftslagsvandanum og verði hluti af lausninni,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sem stýrði fundinum.

Í yfirlýsingunni hvetja ráðherrarnir aðila innan byggingariðnaðarins og fasteignageirans til að taka höndum saman um norræna samstöðu um byggingarframkvæmdir með lága koltvísýringslosun. Einnig kalla ráðherrarnir eftir auknu samstarfi innan fræðasamfélagsins og milli rannsóknarstofnana til að afla aukinnar þekkingar sem stuðlað geti að hröðum breytingum.

Í yfirlýsingunni er áhersla lögð á mikilvægi hringrásarhagkerfis innan byggingariðnaðarins. Meðal annars er bent á að byggingar sem þegar hafa verið reistar hafi að geyma mikið af nothæfu byggingarefni sem beri að nýta. Enn fremur er kallað eftir lagasetningu á evrópskum vettvangi sem ýti undir aukna endurnýtingu byggingarefnis.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila