Hvalveiðar skipta miklu máli fyrir atvinnu og byggðir

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ólaf Adolfsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðu hvalveiða, efnahagslegt mikilvægi þeirra, mótmæli erlendra hvalfriðunarsamtaka og fyrirhugaðar lagabreytingar stjórnvalda. Ólafur sagði hvalveiðar vera mikilvæga atvinnugrein á Vesturlandi og taldi ekki efni til að þrengja frekar að löglegum og sjálfbærum veiðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Mikilvæg atvinnugrein á Vesturlandi

Ólafur sagði hvalveiðar skipta miklu máli fyrir atvinnulíf á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit þar sem þær sköpuðu vel launuð sumarstörf fyrir fjölda fólks. Spurður um fullyrðingar um að afurðir seldust illa sagði hann meginmarkaðinn vera í Japan en benti á að langvarandi hlé á veiðum hefði raskað markaðinum og tekið tíma að byggja hann upp á ný.

Gagnrýnir mótmælaaðgerðir

Þegar talið barst að mótmælum samtaka tengdum Paul Watson sem nú eru hér við land sagði Ólafur að markmið þeirra virtist fyrst og fremst vera að vekja athygli og afla fjárstuðnings. Hann lagði áherslu á að hvalveiðar væru löglegar og byggðust á útgefnum veiðileyfum. Aðspurður um öryggi sjómanna sagði hann að ógnanir eða aðgerðir sem stefndu öryggi fólks í hættu væru óásættanlegar og mikilvægt væri að sýna bæði dýrunum og þeim sem ynnu við veiðarnar virðingu.

Telur ekki ástæðu til frekari takmarkana

Pétur spurði einnig hvort hvalveiðar og hvalaskoðun gætu farið saman. Ólafur taldi svo vera og sagði veiðarnar byggjast á mati sérfræðinga um sjálfbæra nýtingu. Í lok umræðunnar var hann spurður um fyrirhugað frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um frekari takmarkanir á hvalveiðum. Ólafur sagðist ekki sjá fagleg rök fyrir slíkum breytingum þar sem veiðarnar væru stundaðar samkvæmt gildandi lögum og vísindalegri ráðgjöf.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila