Hvern myndir þú vilja sjá sem næsta forseta Íslands?

Nú þegar styttist í vorið og þar með í næstu forsetakosningar á Íslandi hafa margir verið ýmist orðaðir við framboð til embættisins eða þegar gefið það út að þeir gefi kost á sér í slagnum um Bessastaði.

Af því tilefni höfum við ákveðið að efna til könnunar á vefsíðu Útvarps Sögu þar sem settur hefur verið upp listi yfir frambjóðendur sem ýmist hafa verið orðaðir við framboð eða þegar gefið það út að þeir gefi kost á sér til embættis forseta Íslands.

Því er upplagt fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í könnuninni að skoða listann hér hægra megin á vefsíðunni en hafa ber í huga að þar sem listinn er langur þá er hægt að smella á hnapp fyrir neðan könnunina sem á stendur: Næsta síða til þess að sjá nöfn fleiri aðila. Velja svo þann sem þér líst vel á og smella á hnappinn sem á stendur kjósa.

Niðurstöðurnar verða svo kynntar rétt fyrir hádegi á morgun í þættinum Línan laus.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila