Hyggja á málsókn gegn ríkinu vegna ráðstöfunar Vatnsmýrar

Samtök um betri byggð, hópur áhugafólks um borgarskipulag og þróun Reykjavíkur, hyggjast höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna ráðstöfunar Vatnsmýrarinnar og tilvist Reykjavíkurflugvallar á svæðinu. Samtökin segja íslenska ríkið hafa tekið landið af Reykvíkingum með ólögmætum hætti árið 1946 og afhent það Flugfélagi Akureyrar, síðar Flugfélagi Íslands og Icelandair, til afnota án endurgjalds.

Í yfirlýsingu frá hópnum kemur fram að samtökin hafi í um þrjá áratugi barist fyrir þéttri og mannvænni byggð í Vatnsmýri í stað þess sem þau kalla „85 ára gamlan herflugvöll“ á einu verðmætasta byggingarlandi Reykjavíkur.

Segja ríkið hafa misbeitt valdi gegn Reykvíkingum

Samtökin segjast á síðustu 30 árum hafa safnað umfangsmiklum gögnum um það sem þau kalla samsæri ríkisvalds og Flugfélags Akureyrar gegn Reykvíkingum allt frá árinu 1940. Þá telja þau einnig að fyrir liggi gögn um ólögmæta landtöku Vatnsmýrarinnar árið 1946 og um áratugalanga misbeitingu ríkisvalds gagnvart borgarbúum.

Í yfirlýsingunni er jafnframt gagnrýnt að borgarstjórn Reykjavíkur hafi um langt skeið vanrækt að gæta hagsmuna Reykvíkinga í málinu.

Hafa leitað til lögmanna

Forsvarsmenn Betri byggðar segja hópinn í gegnum tíðina hafa átt fjölmörg samskipti við ráðamenn ríkis og borgar, sent inn umsagnir, tillögur og greinargerðir og setið ótal fundi án þess að árangur hafi náðst. Í kjölfar viðræðna við lögmenn hafi því verið tekin ákvörðun um að stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla.

Safna áheitum fyrir málarekstri

Samtökin hafa nú hafið söfnun áheita á Karolina Fund til að standa straum af kostnaði vegna undirbúnings málsins og vinnu lögmanna.

Í yfirlýsingunni segir að markmiðið sé að losa Reykvíkinga undan því sem samtökin kalla langvarandi misbeitingu ríkisvalds og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði, borgarmenningu, lýðheilsu og hagsæld í Reykjavík til framtíðar.

Smelltu hér til þess að skoða vefsíðu samtakanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila