
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Kolbein Reginsson, líffræðing og hugbúnaðarsmið og Ástu Logadóttur, doktor í verkfræði með sérhæfingu í ljósafræðum í þættinum Skipulagsmál, um framkvæmdir vegna uppbyggingarinnar í Fannborg og Hamraborg í Kópavogi. Kolbeinn sagði íbúa þegar finna verulega fyrir niðurrifi og framkvæmdum og óttaðist að raskið gæti staðið árum saman. Hann lýsti miklum hávaða og titringi og sagði einnig hafa komið fram áhyggjur af áhrifum fyrirhugaðra sprenginga á nærliggjandi hús. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Titringurinn fannst inni í íbúðum
Niðurrif bygginga á svæðinu hefur þegar haft töluverð áhrif á nærumhverfið að sögn Kolbeins. Hávaði og högg frá framkvæmdunum hafi borist inn í nærliggjandi hús og íbúar fundið greinilega fyrir titringi.
Kolbeinn tók sem dæmi frásögn íbúa sem hefði setið heima hjá sér með mjólk í glasi. Við högg frá framkvæmdunum hefði mátt sjá gára á yfirborði mjólkurinnar. Hann sagði þetta sýna hversu greinilega titringurinn bærist inn í húsnæði fólks.
Áhyggjur af sprengingum við nærliggjandi hús
Frekari framkvæmdir kalla, að sögn Kolbeins, á sprengingar og jarðvinnu vegna nýbygginganna. Þar þyrfti að gæta sérstaklega að þeim húsum sem þegar stæðu í næsta nágrenni.
Hann sagði að verkfræðingur hefði komið á framfæri við bæjarstjóra. verulegum áhyggjum, vegna burðarvirkis bygginga á svæðinu og mögulegra áhrifa framkvæmdanna. Kolbeinn taldi mikilvægt að slíkar ábendingar væru teknar alvarlega áður en farið yrði í umfangsmiklar sprengingar.
Ekki væri hægt að fullyrða fyrir fram að hús yrðu fyrir skemmdum en að hans mati þyrfti að rannsaka áhættuna og tryggja að framkvæmdunum fylgdi ekki tjón á þeim byggingum sem fyrir væru.
Framkvæmdatíminn leggst á þá sem fyrir eru
Kolbeinn sagði vandann ekki aðeins snúast um hvernig Hamraborg og Fannborg litu út þegar uppbyggingunni lyki. Íbúar þyrftu einnig að búa við framkvæmdatímann sjálfan með niðurrifi, jarðvinnu, sprengingum, hávaða og breyttu aðgengi.
Sérstaklega þyrfti að huga að eldra fólki, fötluðum og öðrum sem ættu erfiðara með að komast um svæðið þegar hefðbundnar leiðir og aðkoma að húsum raskaðist.
Hjördís lagði áherslu á að áhrif framkvæmda á núverandi íbúa mættu ekki verða aukaatriði í svo umfangsmikilli uppbyggingu. Það væri ekki nóg að horfa eingöngu á endanlega ásýnd nýrrar byggðar, heldur þyrfti einnig að taka tillit til þeirra sem byggju við framkvæmdasvæðið meðan á uppbyggingunni stæði.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
