
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í síðdegisútvarpinu um stöðu barna af erlendum uppruna í íslenskum skólum, aðlögun innflytjenda og breytingar í málaflokkum alþjóðlegrar verndar. Þar kom fram að ráðherrann vill efla íslenskukennslu innan heimaskóla barna og ríkisstjórnin hyggist halda áfram harðari stefnu í útlendingamálum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vill efla íslenskukennslu innan skólanna sjálfra
Í viðtalinu sagði Inga að núverandi fyrirkomulag í Reykjavík, þar sem börn færu tímabundið úr sínum skóla í sérstök tungumálasetur, væri ekki besta lausnin fyrir nemendur af erlendum uppruna. Hún sagði mikilvægt að börn fengju íslenskukennslu innan sinna eigin skóla svo þau héldu betur tengslum við skólasamfélagið og jafningja sína. Inga segir það skipta miklu máli að börn aðlöguðust íslensku samfélagi frá fyrstu tíð og fengju sterkan grunn í íslensku máli og samfélagi. Hún sagði jafnframt mikilvægt að Ísland lærði af reynslu annarra Norðurlanda þar sem aðskilin samfélög hefðu myndast vegna skorts á aðlögun og tungumálakennslu.
Inga sagði að þeir sem flyttu til Íslands ættu að taka þátt í íslenskri menningu og samfélagi og mikilvægt væri að standa vörð um íslenska tungu og hefðir í litlu samfélagi eins og Íslandi.
Brottfararúrræði og hert stefna stjórnvalda
Ráðherrann ræddi einnig breytingar í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Hún sagði stjórnvöld hafa hert framkvæmd útlendingamála og skýr skilaboð hefðu verið send um að misnotkun kerfisins yrði ekki liðin. Hún staðfesti að verið væri að undirbúa sérstök brottfararúrræði fyrir fjölskyldur sem biðu brottvísunar úr landi. Þar yrðu fjölskyldur vistaðar saman þar til brottför færi fram, í stað þess að börn væru aðskilin frá foreldrum sínum eða fólk vistað í fangelsisúrræðum.
Að hennar mati væri slíkt bæði mannúðlegra og skilvirkara en fyrra fyrirkomulag. Hún sagði jafnframt að stjórnvöld ætluðu að taka fastar á einstaklingum sem kæmu til landsins í glæpsamlegum tilgangi eða misnotuðu kerfi alþjóðlegrar verndar.
Umræða um fordóma og samfélagsbreytingar
Í viðtalinu kom fram að Inga telur umræðu um innflytjendamál oft verða mjög harða og fólk sé fljótt stimplað með rasistastimpli fyrir að ræða íslenska menningu og samfélagsgerð. Hún sagði mikilvægt að hægt væri að ræða þessi mál opinskátt án þess að fólk væri sakað um fordóma. Að hennar mati bæri íslenskum stjórnvöldum skylda til að verja íslenskt samfélag, tungumál og menningu samhliða því að taka vel á móti fólki sem kæmi hingað til lands.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
