Ingvar yfirgefur Viðreisn og gengur í Sjálfstæðisflokkinn

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, hefur sagt skilið við þingflokkinn og ákveðið að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir ríkisstjórnina hafa brugðist fyrirheitum um skattamál, atvinnulíf og uppbyggingu innviða á landsbyggðinni. Ríkisstjórnin njóti ekki lengur stuðnings hans og muni hann framvegis starfa í stjórnarandstöðu.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ingvar hefur sent frá sér. Þar gagnrýnir hann meðal annars fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027, fyrirhugaðar skattahækkanir og forgangsröðun stjórnvalda í samgöngumálum.

Skattahækkanir ganga gegn kosningaloforðum

Ingvar segir að fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 hafi ráðið úrslitum um ákvörðun hans. Hann hafi undanfarna mánuði velt því fyrir sér hvort hann gæti staðið við eigin kosningaloforð innan núverandi stjórnarsamstarfs.

Hann styðji markmiðið um hallalaus fjárlög en hafni þeirri leið ríkisstjórnarinnar að auka skattheimtu í stað þess að leggja meiri áherslu á aðhald og hagræðingu í ríkisrekstri.

Ingvar bendir á að tekjur ríkissjóðs verði samkvæmt fjárlagafrumvarpinu hærra hlutfall af landsframleiðslu en gert var ráð fyrir í fjárlögum þessa árs.

Hann minnir jafnframt á að Viðreisn hafi lofað því fyrir kosningar að hækka ekki skatta.

„Við getum aldrei skattlagt okkur til velsældar,“ segir Ingvar í yfirlýsingunni.

Hann gagnrýnir einnig fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% um áramótin. Fyrirtæki í ferðaþjónustu selji þjónustu langt fram í tímann og geti því þurft að bera kostnaðinn af skattahækkuninni sjálf.

Gagnrýnir skerðingu samgangna á landsbyggðinni

Ingvar segir að stjórnvöld hafi ekki staðið við fyrirheit um uppbyggingu samgönguinnviða á landsbyggðinni þrátt fyrir auknar álögur á íbúa og fyrirtæki.

Hann bendir á að heildarframlög til samgöngumála lækki samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 á sama tíma og fyrirhugað sé að hækka kílómetragjaldið um tæp 16%.

Innleiðing gjaldsins hafi auk þess verið of hröð og illa undirbúin. Ingvar telur ósamræmi í því að fjármálaráðherra hafi kynnt breytinguna sem tekjuhlutlausa en frestun gildistöku hennar hafi síðan verið sögð kosta ríkissjóð nokkur hundruð milljónir króna á mánuði.

Hann gagnrýnir einnig hækkun vörugjalda á bifreiðar og segir hana koma sérstaklega illa við íbúa landsbyggðarinnar, þar sem rafbílar séu hlutfallslega færri.

Ingvar nefnir jafnframt fækkun vetrarferða til Grímseyjar úr fjórum í þrjár á viku, fyrirhugaða fækkun flugferða til Vopnafjarðar og Þórshafnar úr fimm í þrjár á viku og fækkun strætóferða milli Akureyrar og Reykjavíkur.

Á sama tíma hafi kostnaður við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins farið langt fram úr upphaflegum áætlunum.

Biður Austfirðinga afsökunar á atkvæði sínu

Ingvar gagnrýnir sérstaklega að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið sett á framkvæmdaáætlun í samþykktri samgönguáætlun Alþingis.

Hann bendir á að göngin séu fullhönnuð og tilbúin til útboðs og að sveitarfélög á Austurlandi hafi sameinast um að þau verði næstu jarðgöng landsins.

Ingvar greiddi sjálfur atkvæði með samgönguáætluninni en segir það nú hafa verið mistök.

„Ég greiddi þessari samgönguáætlun atkvæði. Það voru mistök. Ég bið Austfirðinga afsökunar á því og tek ábyrgð á eigin atkvæði.“

Hann gagnrýnir einnig vinnubrögð við fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú. Tillögur innviðaráðherra hafi hvorki verið kynntar né ræddar á þingflokksfundi Viðreisnar áður en þær voru kynntar opinberlega. Þingmenn hafi aðeins fengið skilaboð um málið kvöldið áður.

Hafnar fækkun þingmanna Norðausturkjördæmis

Ingvar mótmælir jafnframt hugmyndum dómsmálaráðuneytisins um að fækka þingmönnum Norðausturkjördæmis úr tíu í sjö.

Hann segir mikilvægt að jafna vægi atkvæða en að jafnframt verði að tryggja íbúum landsbyggðarinnar aðgang að kjörnum fulltrúum sínum.

„Ég mun ekki samþykkja að þingmönnum kjördæmisins verði fækkað um 30%,“ segir hann.

Ingvar vill að stjórnvöldum verði gert skylt að meta áhrif lagasetningar og stefnumótunar á byggðir landsins. Þá leggur hann til að starfsemi ráðuneyta og ríkisstofnana verði í auknum mæli flutt út á land.

Segir stjórnarsamstarfið einkennast af hrossakaupum

Ingvar gagnrýnir einnig hvernig samstarfi ríkisstjórnarflokkanna hefur verið háttað.

Hann segir að samstarfið hafi um of snúist um hrossakaup þar sem flokkar samþykki mál sem gangi gegn eigin sannfæringu til að fá önnur mál fram.

Hann nefnir áform um leigubremsu og vísitölutengingu bóta meðal þeirra mála sem hann eigi erfitt með að samræma eigin stjórnmálaskoðunum.

Ingvar skilgreinir sig sem frjálslyndan, hægrisinnaðan landsbyggðarþingmann og segir áherslur sínar á lægri skatta, öflugt atvinnulíf og ábyrgð í ríkisfjármálum ekki lengur samrýmast stefnu Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar.

Telur sig eiga meiri samleið með Sjálfstæðisflokknum

Ingvar hefur þegar tilkynnt forseta Alþingis, formanni Viðreisnar og þingflokksformanni flokksins um ákvörðun sína.

Hann segir ákvörðunina hafa verið erfiða og tekna eftir langa íhugun. Honum þyki vænt um samstarfsfólk sitt í Viðreisn en beri jafnframt ábyrgð gagnvart kjósendum sínum.

Ingvar hefur átt viðræður við forystu Sjálfstæðisflokksins og lýst vilja sínum til að ganga í þingflokkinn.

Hann segir samstarf sitt við þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa verið gott á kjörtímabilinu og að hann hafi sjaldan verið ósammála málflutningi þeirra í atvinnu- og efnahagsmálum.

Hann telur Sjálfstæðisflokkinn standa nær eigin áherslum um einstaklingsfrelsi, atvinnurekstur og ríkisfjármál.

Ingvar lýkur yfirlýsingunni á því að staðfesta að hann gangi til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og muni áfram styðja þau þingmál sem hann telur til góðs, óháð því hvaðan þau koma.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila