
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu í dag um fyrri aðildarumsókn Íslands, samningsramma ESB og fullyrðingar um að með viðræðum geti þjóðin „kíkt í pakkann“. Sigmundur sagði innihald pakkans þegar liggja fyrir enda hefðu forsendur viðræðnanna verið birtar árið 2010. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Deilt um stöðu fyrri umsóknar
Arnþrúður spurði hvers vegna fulltrúar ESB héldu því fram að fyrri umsókn Íslands væri enn í gildi þar sem ríkisstjórn hans hefði dregið umsóknina til baka árið 2015 og væri ekki lengur umsóknarríki.
Sigmundur svaraði því til að ESB gæti verið reiðubúið að halda viðræðunum áfram frá þeim stað þar sem þær stöðvuðust. Ísland hefði þegar fallist á samningsramma sambandsins og því væri skiljanlegt að ESB teldi hægt að taka þráðinn upp að nýju ef íslensk stjórnvöld óskuðu eftir því. Hann sagði hins vegar óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld vildu byggja nýtt ferli á fyrri umsókninni á sama tíma og þau héldu því fram að samningsstaða Íslands hefði styrkst.
Aðildarviðræður miða að aðlögun regluverks ESB
Aðspurður um hvað fælist í aðildarviðræðum sagði Sigmundur að ferlið snerist ekki um að 2 jafnstæðir aðilar semdu frá grunni. Ísland þyrfti að sýna hvernig það hygðist taka upp og innleiða regluverk ESB. Hann sagði þetta hafa komið skýrt fram í samningsrammanum frá 2010. Þar hefði verið lagt til grundvallar að Ísland stefndi að inngöngu og viðræðurnar snerust um hvernig landið myndi laga sig að reglum sambandsins.
Samningsmarkmiðin þurfa að liggja fyrir
Arnþrúður benti á að samningsmarkmið íslenskra stjórnvalda hefðu ekki verið birt og spurði hvað Ísland hygðist sækja í viðræðurnar.
Sigmundur sagði stjórnvöld forðast að birta markmiðin vegna þess að þá yrði ljóst hvað þau teldu þurfa að semja um og hversu raunhæft væri að ná því fram. Hann hafnaði því að atkvæðagreiðslan snerist aðeins um að kanna hvað ESB byði. Að hans sögn liggja meginforsendur ferlisins þegar fyrir og kosið verði um hvort þjóðin vilji veita Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra heimild til að hefja viðræður um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
