Innri endurskoðun falið að gera úttekt á samning um fækkun bensínstöðva

Borgarstjórn samþykkt á fundi sínum í dag að fela innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að framkvæma úttekt á aðdraganda og fyrirkomulagi samningaviðræðna Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðarhafa eldsneytisstöðva í Reykjavík sem fram fóru í kjölfar samþykktar borgarráðs um fækkun bensínstöðva í borginni, frá 9. maí 2019. 

Jafnframt verði samningar við rekstraraðila og lóðarhafa eldsneytisstöðva sem samþykktir voru á fundi borgarráðs teknir til skoðunar.

Meðal annars verði kannað hvort málefnaleg sjónarmið hafi legið til grundvallar samningunum og hvort bestu hagsmunir borgarinnar hafi verið nægjanlega tryggðir við samningsgerðina.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila