Ísland ætti að kanna fríverslunarsamning við Bandaríkin

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Lilju Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu um möguleika Íslands á fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Lilja sagðist mjög hlynnt því að slíkur samningur yrði gerður og telur að ný skilaboð frá Bandaríkjunum um aukin samskipti gefi tilefni til að taka málið upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Myndi taka málið upp við fyrsta tækifæri

Pétur spurði hvers vegna Ísland hefði ekki gert fríverslunarsamning við Bandaríkin eða Norður-Ameríku.

Lilja sagði Bandaríkin hingað til ekki hafa sýnt mikinn áhuga á slíkum samningi. Hún tók jafnframt fram að hún hefði sjálf ekki reynt að gera fríverslunarsamning þegar hún gegndi embætti utanríkisráðherra. Hún hefði endurnýjað varnarstaminginn við Bandaríkin í tíð sinni sem utanríkisráðherra árið 2016 og hefði það verið til þess að styrkja samninginn fyrir báða aðila.

Hún sagði hins vegar að þetta væri mál sem hún myndi taka upp við fyrsta tækifæri.

Ný skilaboð frá Bandaríkjunum

Lilja vísaði til skilaboða sem bárust frá Bandaríkjunum 30. ágúst um að þau vildu meiri samskipti við Ísland. Hún taldi að í ljósi þeirra skilaboða ætti að vera hægt að byrja að kanna möguleika á fríverslunarsamningi.

„Mér líst mjög vel á að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin,“ sagði Lilja.

Bandaríkin stærsta einstaka viðskiptalandið

Lilja sagði Evrópu, þegar mörg ríki væru tekin saman, vera stærsta viðskiptasvæði Íslands. Þegar horft væri til einstakra ríkja væru Bandaríkin hins vegar það ríki sem Ísland ætti mest viðskipti við.

Hún taldi jafnframt líklegt að almenn sátt væri meðal þingmanna og stjórnmálamanna um að Ísland reyndi að ná fríverslunarsamningi við Bandaríkin.

Vísar til fríverslunarsamningsins við Kína

Lilja benti á að Ísland hefði verið meðal fyrstu ríkja til að gera fríverslunarsamning við Kína. Hún sagði jafnframt tímabært að uppfæra þann samning og nefndi að Sviss hefði þegar farið þá leið.

Hún tengdi aukin utanríkisviðskipti við verðmætasköpun og sagði Ísland þurfa að einblína á að skapa góð störf og öflugt atvinnulíf. Sú verðmætasköpun væri forsenda þess að hægt væri að styrkja velferðarkerfið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila