Ísland fjármagnar að hluta nýja stjórnsýslubyggingu í Malaví

Fulltrúar sendiráðs Íslands í Malaví, ásamt fulltrúum sendiráðs Noregs og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), undirrituðu á föstudaginn samning um stuðning við stofnanir og samtök sem standa vörð um mannréttindi í landinu.

Þá var fyrsta skóflustungan að nýrri stjórnsýslubyggingu í Mangochi-héraði tekin fyrr í vikunni, en framkvæmdin er sögð marka tímamót því hún er fjármögnuð sameiginlega af íslenskum og malavískum stjórnvöldum. 

Inga Dóra Pétursdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Malaví, skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd í höfuðstöðvum UNDP í Lilongwe. Verkefninu er ætlað að efla réttarkerfið sem og styrkja stoðir og sjálfstæði stofnana sem láta sig mannréttindi í Malaví varða. Má þar nefna Mannréttindastofnun Malaví, skrifstofu umboðsmanns sem og frjáls félagasamtök sem vinna að þessum málum. Sérstök áhersla er lögð á hagsmuni og réttindi ólíkra og viðkvæmra jaðarsettra hópa, þar á meðal hinsegin fólks og fatlaðra. Verkefnið, sem er til þriggja ára, er í samræmi við aukna mannréttindaáherslu í þróunarsamvinnu Íslands.

„Ísland tekur alvarlega skuldbindingu sína, um að virða, vernda og efla mannréttindi í verki, bæði alþjóðlega og í samstarfsríkjum Íslands,“ sagði Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, í ávarpi sem hún flutti við athöfn í tilefni af undirrituninni. 

Þá fundaði Elín með Nancy Tembo, utanríkisráðherra Malaví, þar sem blómleg þróunarsamvinna Íslands og Malaví til áratuga var efst á baugi, en í ár verða liðin 35 ár síðan samstarf ríkjanna hófst.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila