Ísland leggur fram 410 milljónir í kyn og frjósemisverkefnis í Úganda

Ísland tekur þátt, með Danmörku og Svíþjóð, í umfangsmiklu verkefni Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna í Úganda á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis. Framlag Íslands nemur um 410 milljónum króna til 3ja ára og nær verkefnið til 9 héraða. Samningur um verkefnið, Strengthening Adolescents and Youth Empowerment and Rights var undirritaður í Kampala. Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands þar í landi, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.

Áhersla á ungt fólk og viðkvæma hópa

Í tilkynningu segir að verkefnið beinist að því að efla fræðslu og þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis og styrkja forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi meðal ungs fólks á aldrinum 10–24 ára, þar á meðal í flóttamannabyggðum.

Hildigunnur Engilbertsdóttir segir samstarf Íslands við UNFPA á þessu sviði hafa skilað árangri og nýja verkefnið byggi á þeim grunni. Hún bendir jafnframt á að sameiginlegt átak Norðurlanda skipti miklu máli á tímum þegar alþjóðleg framlög til málaflokksins dragast saman.

Áhersla lögð á fæðingarfistill

Stærstur hluti framlags Íslands fer í aðgerðir gegn fæðingarfistli sem er alvarlegur fylgikvilli við barnsburð. Verkefnið felur meðal annars í sér fræðslu, vitundarvakningu og styrkingu heilbrigðiskerfisins. Gert er ráð fyrir að framkvæma yfir 1.100 skurðaðgerðir vegna fæðingarfistils á verkefnatímanum. Skurðstofur verða uppfærðar á 5 héraðssjúkrahúsum og 270 heilbrigðisstarfsmenn fá þjálfun í öruggum aðgerðum.

Stuðningur og endurhæfing fyrir konur

Alls er áætlað að 850 konur fái endurhæfingu og stuðning til félagslegrar enduraðlögunar eftir aðgerð. Þá fá konur fjárhagslegan stuðning að jafnvirði 30 bandaríkjadala og aðgang að starfsmenntun til að styrkja stöðu sína.

Alvarleg staða í Úganda

Áætlað er að 75.000–100.000 konur í Úganda þjáist af fæðingarfistli og um 1.900 ný tilfelli bætast við árlega. Aðgerðir eru færri en tilfellin sem leiðir til vaxandi vanda. Þá er tíðni þungana meðal unglingsstúlkna sú hæsta í Austur-Afríku og ein af hverjum 4 stúlkum á aldrinum 15–18 ára hefur eignast barn eða er þunguð.

Hluti af víðtækari þróunarsamvinnu

Ísland styður sambærileg verkefni í Malaví og Síerra Leóne. Með þátttöku í verkefninu í Úganda er framlag Íslands til baráttu gegn fæðingarfistli styrkt í öllum samstarfsríkjum á sviði þróunarsamvinnu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila