
Kristján Örn Elíasson ræddi við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan meistara í skák og fyrrverandi ritstjóra DV, í þættinum Við skákborðið um frammistöðu íslenska landsliðsins á Ólympíumótinu í skák. Björn sagði lokasætið hafa verið vonbrigði en liðið hefði verið í stöðu til að ná mjög góðum árangri þegar aðeins 2 umferðir voru eftir. Hann vill að íslenska liðið geti veitt öllum þjóðum harða keppni og segir Ísland ekki mega glata þeirri virðingu sem íslensk skák hefur lengi notið erlendis. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Allt leit vel út þegar 2 umferðir voru eftir
Ísland vann Suður-Kóreu 2½–1½ og gerði síðan 2–2 jafntefli við sterkt lið Ítalíu. Björn sagði viðureignina gegn Ítalíu hafa verið bestu umferð íslenska liðsins á mótinu. Guðmundur Kjartansson vann þar mikilvægan sigur en Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson gerðu góð jafntefli gegn sterkum stórmeisturum.
Í næstu umferð vann Ísland Japan 3–1 og var þá komið í mjög góða stöðu þegar 2 umferðir voru eftir.
Björn sagði að á þeim tímapunkti hefði liðið átt möguleika á að gera mjög gott mót.
Stórtapið gegn Dönum varð dýrt
Lokaspretturinn sneri stöðunni hins vegar við. Ísland tapaði ½–3½ gegn Dönum og Björn lýsti þeirri viðureign sem miklum skelli.
Hann sagði ekkert hafa gengið upp og stórt tap í liðakeppni gæti setið í mönnum. Honum fannst áhrifin hafa fylgt liðinu inn í síðustu umferðina þar sem Ísland gerði jafntefli við Albaníu.
Björn taldi það slæm úrslit og sagði sérstaklega sárt að Jóhann Hjartarson skyldi tapa þar eftir að hafa verið taplaus og mjög sterkur megnið af mótinu.
Ísland hafði verið í 48. sæti á styrkleikalista mótsins en endaði í 58. sæti. Björn sagði það vissulega vonbrigði, sérstaklega vegna þess hversu góð staðan hafði verið skömmu fyrir mótslok.
Sýnd veiði en ekki gefin
Björn sagði markmiðið ekki eiga að vera að íslenska liðið vinni endilega Ólympíumótið heldur að það sé nógu sterkt og þétt til að geta valdið hvaða þjóð sem er vandræðum.
Hann nefndi sem dæmi viðureignina gegn Tékklandi þar sem Ísland tapaði með minnsta mun gegn mjög sterku liði. Slík úrslit gæti hann vel sætt sig við ef Íslendingar væru inni í öllum skákunum og andstæðingarnir þyrftu að hafa fyrir sigrinum.
Íslenska liðið ætti að vera sýnd veiði en ekki gefin.
Augun stækka þegar Ísland er nefnt
Björn sagði hafa fundið það allan sinn skákferil að Ísland hefði sérstaka stöðu í hugum erlendra skákmanna.
Þegar hann segðist vera frá Íslandi stækkuðu augun í fólki og mikils væri látið af íslenskri skákhefð. Þeirri stöðu þyrfti að halda.
Hann vill sjá landslið sem önnur lið bera virðingu fyrir og eru smeyk við að mæta. Þótt einstakar viðureignir geti farið illa megi íslenska liðið ekki missa þá stöðu sem landið hefur byggt upp í alþjóðlegum skákheimi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
